slapi wrote:
Það er mjög líklegt hökin sem eiga að grípa "lykilinn" séu brotin eftir tilfæringarnar og þurfi að skipta út lyklalesaranum.
Ef það eru einhverjar frekari spurningar geturðu heyrt í okkur hjá Eðalbílum 5105050
Takk fyrir þetta. Ég varð fyrir því óláni fyrir mörgum árum að missa mikið af heyrninni, voðalega hentugt fyrir mig að nota E-mail, heyri illa í síma.
Þegar ég sting lyklinum í þá er eins og það sé spjald fyrir, eða svona loka, stakk puttanum inn þá opnaðist hún upp, alla vega eins og það vanti herslumuninn til að lykilinn haldist inni, svissast á og allt svoleiðis, get ekið bílnum.
Ég tók utan um "lykilinn" með þumal og vísifingri, hristi aðeins og kippti út, ekki mikið átak, en auðvitað gæti það verið nóg.
Eruð þið með svona varahluti, og etv. ódýrari en...?
Aftur takk fyrir snögg viðbrögð.
Guðjón.