e36 fer ekki í gang

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

e36 fer ekki í gang

Postby grettir » Fri 16. Apr 2004 15:33

Sælir, nú fer bíllinn ekki í gang hjá mér :shock:

Hann hefur alltaf dottið í gang í fyrsta, en núna bara startar hann endalaust og það kemur ekki einu sinni hökt eða nein merki um að hann sé á lífi.

Vitið þið um einhverja þekkta bögga í þessum bílum? Er eitthvað sem fer allt í einu og lýsir sér með svona sviplegu andláti?

Ég var að velta því fyrir mér hvort að kerti og/eða kertþræðir væru málið.

Með fyrirfram þökk...
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Postby gstuning » Fri 16. Apr 2004 15:52

Nú ert best að byrja á að athuga hvort að það sé eftirfarandi

Öll plögg í vélarrými vel fest
Og allt þurrt
Rafgeymír í lagi : láta mæla hann
Bensín dæla fari í gang
að það sé neisti
o.s.frv
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Postby grettir » Fri 16. Apr 2004 15:58

Hann startar alveg eins og hann fái borgað fyrir það...

En hvernig sé ég hvort að bensíndælan fari í gang? :oops:
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Postby vallio » Fri 16. Apr 2004 16:30

wow, ekki gaman að lesa þetta...
var búnað heyra um annan BMW e36 sem lét svona, bara allt í einu fór hann ekki í gang (sama hvað). svo kom eigandinn aftur að honum svona 2 klst. síðar og var með einhvern sem ætlaði að skoða þetta fyrir hann þá bara hrökk hann í gang í fyrsta :roll:
...--en það var að vísu eftir þvott--... gæti verið að eitthvað hafi blotnað þó að það ætti ekki að gerast......

en því miður veit ég ekkert, svo mig langar bara að segja eitt....

prufaðu að setja bensín á hann :D :D :D

nei, ok sorry....
Valli,
VW Passat 4motion '07
Kawasaki Z-750 '07
Ski-Doo mxz 600
User avatar
vallio
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 306
Joined: Tue 17. Feb 2004 20:30
Location: Akureyri

Postby grettir » Fri 16. Apr 2004 16:43

vallio wrote:
prufaðu að setja bensín á hann :D :D :D



:D Þessi var ágætur. Never overlook the obvious. Var einhverntíma að lesa troubleshooting síðu um Bmw þar sem einn var að lýsa því hvernig bíllinn gekk alltof hratt. Vandamálið var að mottan var að ýta á bensíngjöfina :P
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Postby hlynurst » Fri 16. Apr 2004 17:21

Getur ekki verið að startarinn skjótist ekki fram eins og hann á að gera og þú þurfir að liðka hann aðeins?
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby grettir » Fri 16. Apr 2004 20:03

Nei, hann startar alveg.. allt snýst og þannig, það er bara eins og hann kveiki ekki. Lýsir sér alveg eins og maður sé að reyna að starta honum bensínlausum :) En það er nóg af því, hehe.
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Postby hlynurst » Fri 16. Apr 2004 20:12

Ég er að meina að hann snúist en skjótist ekki fram...

grettir wrote:Nei, hann startar alveg..


Er ekki í lagi með bílinn þá. :lol:
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby grettir » Fri 16. Apr 2004 20:28

hlynurst wrote:Ég er að meina að hann snúist en skjótist ekki fram...

grettir wrote:Nei, hann startar alveg..


Er ekki í lagi með bílinn þá. :lol:


Ef hann færi í gang, þá væri ég kátur :(

Nei, sko. Startarinn snýr vélinni, en hún fer ekki í gang.
Þannig að það er nóg rafmagn, startarinn er í lagi en það kviknar ekki í neinu bensíni.

Ég er að spá í að hringja í Krók og fá hann heim blessaðan. Mér er meinilla við að láta hann standa uppi í vinnu alla helgina :?
Mikið af óþekku fólki til sjáiði..
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Postby grettir » Fri 16. Apr 2004 20:30

Já ég sé núna að þú ert að meina hvort ég heyri bara startara hávaða.. :D

Nei, vélin snýst.. lét nú vinnufélaga minn fylgjast með því, hehe.


Sem ég var búinn að bjóða far heim, by the way. Frekar vandræðalegt því ég var nýbúinn að segja honum hversu magnaður bíll þetta væri :oops:
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Postby gunnar » Fri 16. Apr 2004 21:00

Þarftu endilega að láta Krók draga hann? Er nokkuð mál að binda bara spotta í hann og kippa honum þannig heim greyið vesalingnum ?
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Postby grettir » Fri 16. Apr 2004 21:11

Hann er sjálfskiptur og það eru heilir 10 km í vinnuna, svo ég legg eiginlega ekki í það. Bæði uppá skiptinguna og svo eru þeir hálf bremsulausir og illa stýrandi þegar þeir eru ekki í gangi.

Svo maður verður bara að blæða... annars er ég búinn að plata vin minn til að koma og kíkja á þetta með mér á eftir. Aldrei að vita nema að hann detti í gang *krossa fingur*

Vona bara að hann sé ekki kominn með einhverja bilunarveiki. Er kominn í tæp 230 þúsund km ("91 módel) og alveg viðbúið að maður þurfi að fara að endurnýja hitt og þetta. Boddíið er nefnilega eins og nýtt, spurning um að smella bara stærri vél í græjuna.
User avatar
grettir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 598
Joined: Wed 26. Nov 2003 21:57
Location: Reykjavík

Postby Friðrik » Fri 16. Apr 2004 23:05

ef það kom ekkert hökt í byrjun og startarinn gengur fínt þá er þetta örruglega kveikibúnaðurinn þar sem eitthvað bensín væri á vélinni. ég myndi giska á einhverja þræði eða spennukeflið. ekkert mál að tékka á þessu tekur bara eitt kerti úr og startar lætur einhvern horfa á blossan (það á samt að vera dáldið mikill blossi ef þú ert með mæli þá minnir mig að það eigi að vera eitthvað 50000 volt en ég hengi mig nú samt ekki á því :D) og ef enginn blossi kemur þá er bara að taka þráðinn næst kertinu úr sambandi prófa hann eins og kertið og halda þannig áfram að spennukeflinu.
Friðrik
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 82
Joined: Mon 05. Apr 2004 22:19

Postby ///MR HUNG » Fri 16. Apr 2004 23:33

Skoða öryggi er góð byrjun :roll:
330D E46 TOURING MTECH I
320D E46 TOURING
318I E46 (TI 3VOM)

E46 Í RIFI:
330XD TOURING
320D TOURING
318I SEDAN 98-04
323I coupe 99


E46/E39 ///M5 Í RIFI

S:8204469


Image
User avatar
///MR HUNG
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6493
Joined: Tue 31. Dec 2002 23:10
Location: Hrafnista

Postby Dr. E31 » Fri 16. Apr 2004 23:42

Er háspennukefli tengt og í lagi (ef þetta er 318 eða 316)?
Þú ættir að heyra í bensíndælunni í svona 2 sek. þegar þú svissar á bílnum.
User avatar
Dr. E31
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1898
Joined: Wed 11. Sep 2002 01:19
Location: Reykjavík

Next

Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 25 guests