Jæja núna er nokkrir kílómetrar komnir á þennan í sumar.
Er ekki búinn að keyra svona mikið snemma sumars í ansi mörg ár
Bíllinn er búinn að breytast rosalega. Ég er eins og fram hefur komið búinn að setja nýjan framdempara, M50 manifold og stífa fjöðrunina hjá mér (orðinn hrikalega hastur fyrir vikið) ásamt nokkrum öðrum litlum breytingum.
En með þessu öllu þá er bíllinn orðinn mun skemmtilegra, en miklu meira tricky í leiðinni með svona stífa fjöðrun.
Ég var sem dæmi að keyra með Axel Jóhanni um daginn þegar ég fór á smá siglingu inn á hringtorg hjá 10-11 í Setberginu og bíllinn liftaði alveg svaðalega, fyrsta skipti sem ég hef næstum misst bílinn svona ekki reynandi það. Kom alveg smá oh shit fílingur.
En ég ætla klárlega að reyna að kíkja á drift æfingu með hann fljótlega og prufa að henda þessu eitthvað til, miðað við hvað hann á auðvelt með að hreyfa hjól á 245/35 á 9,5" breiðu að aftan þá ætti það að ganga ágætlega á 15".