L2C Power forsýning á Fast Five

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

L2C Power forsýning á Fast Five

Postby Dezzice » Tue 03. May 2011 00:41

Við hjá L2C fengum sér forsýningu fyrir okkur á nýju Fast Five myndina á miðvikudagskvöldið næsta (4. maí) kl 22:30 í Laugarásbíói. Okkur langaði að bjóða meðlimum Kraftsins að koma með okkur á þessa sýningu ef áhuginn er fyrir hendi :D Veit að einhver slatti af fólki er á báðum spjöllum og því væntanlega búið að redda sér miða nú þegar.

Eingöngu verður hægt að kaupa miða á sýninguna með því að notast við tengilinn frá Midi.is sem er inn á spjallinu okkar hér: http://www.live2cruize.com/spjall/showt ... 2-30-hafin

Hægt er að skoða allar upplýsingar um myndina hér: http://www.imdb.com/title/tt1596343/
Eins og sjá má er hún að fá frábæra dóma.

Væri gaman að sjá sem flesta á þessari sýningu og enn skemmtilegra ef allir myndu nú reyna að mæta á stífbónuðum bílum. Ætlum að reyna að hafa þetta smá samkomu í leiðinni :D

Það er eitthvað til af miðum enn þannig hver fer að verða síðastur að redda sér miðum á sýninguna :D

Villý og Palli
http://www.Live2Cruize.com
Dezzice
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 31
Joined: Wed 01. Mar 2006 23:30

Re: L2C Power forsýning á Fast Five

Postby SteiniDJ » Tue 03. May 2011 11:12

Ekki óalmennilegt af ykkur! :)

Er í prófum um þessar mundir og því ekki á leiðinni í bíó. Sé hana bara með almúganum seinna meir. :)
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: L2C Power forsýning á Fast Five

Postby Rafnars » Tue 03. May 2011 11:20

SteiniDJ wrote:Ekki óalmennilegt af ykkur! :)

Er í prófum um þessar mundir og því ekki á leiðinni í bíó. Sé hana bara með almúganum seinna meir. :)


Iss, lélegt!

Ég fer í 1 lokapróf á morgun, fer svo á myndina annað kvöld, 2 lokapróf á tvítugsafmælisdeginum mínum á fimmtudag og svo próf á föstudag!!
Skelltu þér á myndina maður! :D
Rafnar S.
ZZ-658 1999 BMW M5 [BIVIVV] (Gamli Romeo)

Gamlir
RU-479 1997 BMW 523iA (Gamli BIVIVV) - Rifinn og skel hent í Noregi
1999 - BMW 540i/6 (driftbíll, seldur í Noregi)
1991 - BMW 850ci - Ónýtur eftir árekstur í Noregi :argh:
User avatar
Rafnars
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 473
Joined: Wed 27. Feb 2008 15:50
Location: Reykjavík

Re: L2C Power forsýning á Fast Five

Postby SteiniDJ » Tue 03. May 2011 11:36

Hah, nei ég er rólegur. Er að fresta prófi til þess að fá meiri tíma til að læra og væri synd að sóa honum í bíói! :)
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: L2C Power forsýning á Fast Five

Postby siggir » Tue 03. May 2011 12:03

Rafnars wrote:
SteiniDJ wrote:Ekki óalmennilegt af ykkur! :)

Er í prófum um þessar mundir og því ekki á leiðinni í bíó. Sé hana bara með almúganum seinna meir. :)


Iss, lélegt!

Ég fer í 1 lokapróf á morgun, fer svo á myndina annað kvöld, 2 lokapróf á tvítugsafmælisdeginum mínum á fimmtudag og svo próf á föstudag!!
Skelltu þér á myndina maður! :D


Við höfum það nú frekar náðugt yfir prófin, annað en sumir ;)
Sigurður Rúnar Rúnarsson

No guts, no glory
User avatar
siggir
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1721
Joined: Thu 13. Oct 2005 17:35
Location: 1 2 Selfoss

Re: L2C Power forsýning á Fast Five

Postby Benz » Tue 03. May 2011 14:36

Flott framtak hjá L2C :thup:
Benedikt Hans Rúnarsson
User avatar
Benz
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 270
Joined: Mon 29. Dec 2008 10:17
Location: Garðabær

Re: L2C Power forsýning á Fast Five

Postby Dezzice » Wed 04. May 2011 00:07

Því fleiri bílaáhugarugludallar á sama stað því betra segi ég nú bara ;)

Annars veit ég einmitt um slatta af liði sem á að mæta í próf morgunin eftir en ætlar samt að mæta haha :D
Dezzice
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 31
Joined: Wed 01. Mar 2006 23:30

Re: L2C Power forsýning á Fast Five

Postby Grétar G. » Wed 04. May 2011 09:16

Endilega brýna fyrir fólki að fara í sturtu.... þetta verður sveitt sýning hugsa ég, troooooooðfullur salur og meirihluti gaurar!! Djöfull hlakka ég til að sjá þessa mynd á eftir :D
E30 M20B25 TÚRBÓ
E36 ///M3 Daytona Violet
E65 735i LOADED
Range Rover Sport Supercharged
Yamaha YZF R6 '07
E39 ///M5 & Evo V & E60 545i & 300C SRT-8 (Seldir)
User avatar
Grétar G.
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2287
Joined: Tue 13. May 2008 01:10
Location: Ghettó BRH

Re: L2C Power forsýning á Fast Five

Postby krayzie » Wed 04. May 2011 10:04

Grétar G. wrote:Endilega brýna fyrir fólki að fara í sturtu.... þetta verður sveitt sýning hugsa ég, troooooooðfullur salur og meirihluti gaurar!! Djöfull hlakka ég til að sjá þessa mynd á eftir :D


haha sammála, nasty lykt á sýðustu l2c forsýningu :lol:
Audi A4 2.0 4sale
User avatar
krayzie
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 451
Joined: Tue 27. Jul 2010 20:59
Location: Reykjavík

Re: L2C Power forsýning á Fast Five

Postby Dezzice » Wed 04. May 2011 10:16

Hahaha öss ef ég gæti nú stjórnað böðunarhegðun annarra þá væri það fínt. Myndi líka banna fólki að reykja í hléinu svo ég þyrfti ekki að kafna eftir hlé :D
Dezzice
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 31
Joined: Wed 01. Mar 2006 23:30


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 29 guests