Því er ég helst að skoða gjafabréf hjá Iceland Air. En þegar kemur að viðskiptum við flugfélög þá þarf maður alltaf að hugsa sig vel um þar eð þessi bransi er hvað snjallastur við að kannski ekki svína beint á manni en koma með bull eins og að það sé ekki hægt að nota gjafakort til að borga flugvallaskatta, olíugjald eða hvað þeim dettur í hug að kalla þetta.
(Fyrir mína parta er þetta bara flugfar, af hverju á kúnninn að þurfa að pæla í einhverju niðurbroti sem kemur honum ekkert við, svona rétt eins og með tekjuskatt og útsvar - hey, þetta er bara skattur!)
Hafið þið reynslu af svona viðskiptum?
Eða enn betur, einhverjar aðrar hugmyndir til að gefa svona fólki?




