E34 530iA - 1989 árg.

Hér getur þú auglýst BMW-inn þinn til sölu.

E34 530iA - 1989 árg.

Postby Geysir » Mon 04. Apr 2011 12:30

Þessi er til sölu, glæislegur gripur.
BMW 530iA
Árgerð 1989

Aflgjafi: Bensín
Mótor: 3000cc.
Hestöfl: 188.
Skipting: Sjálfskipting, í góðu standi.
Ekinn: 270,xxx km.

Búnaður:
Leðursæti, rafdrifin. Allt virkar og flott, rafmagn í hauspúðum meira að segja.
Rafmagn í rúðum og speglum.
Stóra aksturstalvan, sem er snilld!
Cruise control, sem virkar og bara þægilegt.
Tvívirk topplúga, virkar eins og draumur.
Tvívirk miðstöð
Og sennilega eitthvað fleira sem ég man ekki akkúrat núna.
18" felgur prýða bílinn, hafa séð betri daga en ættu að verða ágætar með smá ást. Verð sennilega búinn að þrífa þær með felgusýru.
Fínn Alpine spilari er í bílnum sem spilar MP3 en því miður ekki með ipod tengi. Ekkert surg í hátölurunum.

Ástand:
Bíllinn er í flottu ástandi, lakk mjög gott og lítið um ryð í bílnum.
Framdekkin eru orðin slöpp og eiga ekki mikið eftir, en get reddað 2 stk af nýjum dekkjum á ca 18-19 þús stykkið sem er mjög gott verð. Afturdekkin eru fín og eiga slatta eftir.
Nýr vatnslás er í bílnum, settur í 31. Mars.
Ný smurður 31. Mars.

Hann á að fara í skoðun í næsta mánuði (maí) og býst ég bara sterklega við því að hann fljúgi í gegn.


Skoða skipti á ódýrari, bíl eða mótorhjóli. (Þá götuskráðu)

Upplýsingar í síma 8461323 eða á atligeysir@gmail.com eða hreinlega í PM

VERÐ: 650 þús og það er staðgreiðsluafsláttur auðvitað.

Myndir:
Image
Image
Image

Þarf bara þvott og góða sýru á felgurnar og þá lítur hann svona út:
Image
Geysir Golf - Kíktu í Golf
'98 W210 E240
'90 GSX750F - The Ugly Bastard
User avatar
Geysir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 673
Joined: Sun 29. Jul 2007 16:51
Location: Laugardalur eða Geysir.

Re: E34 530iA - 1989 árg.

Postby agustingig » Mon 04. Apr 2011 17:55

Mætti ég nokkuð spurja hver er ástæðan fyrir sölu? :D
Image

Ágúst ingi S:823-7971

1992 E36 325i :S
User avatar
agustingig
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2829
Joined: Mon 27. Apr 2009 17:50
Location: Elskum þessar mellur

Re: E34 530iA - 1989 árg.

Postby SteiniDJ » Mon 04. Apr 2011 17:56

Á tímabili varð þessi bíll alltaf á vegi mínum og verður seint sagt að þetta sé ófagurt eintak!
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: E34 530iA - 1989 árg.

Postby Geysir » Mon 04. Apr 2011 18:33

Vaknaði í morgun og langaði svo ofboðslega í mótorhjól, það er ekki það að bíllinn sé eitthvað slæmur. Alls ekki :)

Þakka Steini, þetta er heilt og gott eintak!
Geysir Golf - Kíktu í Golf
'98 W210 E240
'90 GSX750F - The Ugly Bastard
User avatar
Geysir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 673
Joined: Sun 29. Jul 2007 16:51
Location: Laugardalur eða Geysir.

Re: E34 530iA - 1989 árg.

Postby Geysir » Sat 09. Apr 2011 02:48

Enginn með mótorhjól eða eitthvað sniðugt til að skipta við mig eða setja uppí?
Geysir Golf - Kíktu í Golf
'98 W210 E240
'90 GSX750F - The Ugly Bastard
User avatar
Geysir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 673
Joined: Sun 29. Jul 2007 16:51
Location: Laugardalur eða Geysir.

Re: E34 530iA - 1989 árg.

Postby Geysir » Wed 20. Apr 2011 23:20

Bíllinn fór upp á lyftu fyrir viku síðan og þá kom í ljós að það þarf að skipta um báðan ballanstangarenda og síðan er eitthver smá olíuleki á mótor og olíusmit á drifinu.

Ræðst á þessi vandamál í næsta mánuði (ásamt skoðun) en fram að því er gripurinn á tilboðsverði 600 þús og auðvitað hægt að semja um það líka.

Er til í að taka mótorhjól uppí eða í slétt skipti.
Geysir Golf - Kíktu í Golf
'98 W210 E240
'90 GSX750F - The Ugly Bastard
User avatar
Geysir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 673
Joined: Sun 29. Jul 2007 16:51
Location: Laugardalur eða Geysir.

Re: E34 530iA - 1989 árg.

Postby Geysir » Sat 30. Apr 2011 16:23

Eðalgripur hér á ferð.
Geysir Golf - Kíktu í Golf
'98 W210 E240
'90 GSX750F - The Ugly Bastard
User avatar
Geysir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 673
Joined: Sun 29. Jul 2007 16:51
Location: Laugardalur eða Geysir.

Re: E34 530iA - 1989 árg.

Postby Geysir » Wed 04. May 2011 23:44

TTT :)
Geysir Golf - Kíktu í Golf
'98 W210 E240
'90 GSX750F - The Ugly Bastard
User avatar
Geysir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 673
Joined: Sun 29. Jul 2007 16:51
Location: Laugardalur eða Geysir.


Return to Til sölu - BMW

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 12 guests