icesave - Já / Nei

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Eigum við að samþykkja núverandi samning

28
19%
Nei
118
81%
 
Total votes : 146

Re: icesave - Já / Nei

Postby bimmer » Fri 08. Apr 2011 19:05

UnnarÓ wrote:Þar sem það er allavega ekkert að fara að gerast meðan þetta bíður óleyst.

Hvað akkurat gerist við samþykki ICESAVE sem að veldur því að eitthvað fari að gerast hérna??
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: icesave - Já / Nei

Postby rockstone » Fri 08. Apr 2011 19:06

"Krónan hefur rýrnað um 99,5% á síðustu 90 árum. Miðað við það... Borgar það sig að taka tugi milljarða lán í erlendri mynt til næstu 40 ára??? Held að við ættum að segja Nei og fá frekar skuldina í íslenskum krónum ef dómur fellur okkur í óhag. Vextirnir af láninu á ári eru meiri en ríkisstjórnin hefur skorið niður í mennta- og heilbrigðiskerfinu síðastliðið ár!"
User avatar
rockstone
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5217
Joined: Thu 17. Apr 2008 23:20
Location: HérogÞarogAllstaðar

Re: icesave - Já / Nei

Postby sosupabbi » Fri 08. Apr 2011 19:11

Án þess að hafa kynnt mér þetta af einhverju viti langar mig samt að segja að flestir sem ég þekki og ætla að segja já eru hálaunafólk, finnst það frekar skrítið. En ég ætla að segja nei.
E39 540i Touring
sosupabbi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1835
Joined: Wed 24. Oct 2007 18:27

Re: icesave - Já / Nei

Postby UnnarÓ » Fri 08. Apr 2011 19:32

bimmer wrote:
UnnarÓ wrote:Þar sem það er allavega ekkert að fara að gerast meðan þetta bíður óleyst.

Hvað akkurat gerist við samþykki ICESAVE sem að veldur því að eitthvað fari að gerast hérna??

T.d. með samþykki batnar lánshæfismatið sem er liður í því að minnka óvissu sem er helsti Þrándur í Götu hvað varðar fjárfestingar og batnandi atvinnumál.
UnnarÓ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 444
Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Location: RVK

Re: icesave - Já / Nei

Postby gstuning » Fri 08. Apr 2011 19:37

UnnarÓ wrote:Þar sem það er allavega ekkert að fara að gerast meðan þetta bíður óleyst.

Það er akkúrat ekkert sem segir það.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Re: icesave - Já / Nei

Postby bimmer » Fri 08. Apr 2011 19:46

UnnarÓ wrote:
bimmer wrote:
UnnarÓ wrote:Þar sem það er allavega ekkert að fara að gerast meðan þetta bíður óleyst.

Hvað akkurat gerist við samþykki ICESAVE sem að veldur því að eitthvað fari að gerast hérna??

T.d. með samþykki batnar lánshæfismatið sem er liður í því að minnka óvissu sem er helsti Þrándur í Götu hvað varðar fjárfestingar og batnandi atvinnumál.

Við erum skuldsett upp í rjáfur - eigum við semsagt að taka á okkur Icesave skuldaklafann til þess
að geta tekið enn meiri lán?

Ertu viss um að það sé það sem þarf?

Vantar okkur peninga til framkvæmda? Eru ekki til nógir peningar í bönkunum hér heima?
Þarf ekki frekar að stilla af vaxtastigið hér þannig að þeir peningar fari í umferð????
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: icesave - Já / Nei

Postby Lindemann » Fri 08. Apr 2011 20:10

Málið er einfaldlega það að það er enginn grundvöllur eða heimild til þess fyrir ríkisstjórnina að semja um "hvað við eigum að borga mikið" fyrr en að er búið að skera úr um það með dómsúrskurði hvort við eigum yfir höfuð að borga eitthvað.
Þegar er búið að dæma um það er fyrst réttlætanlegt að semja um upphæðina, EF við erum dæmd til að borga.

Það er alltaf áhætta að fara í dómsmál, en það er ekki forsvaranlegt að nota það sem afsökun í svona stóru mál. Þetta gæti líka orðið fordæmisgefandi svo þetta skiptir ekki bara Íslendinga máli.
kv. Jakob B. Bjarnason
User avatar
Lindemann
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 3465
Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Location: norður í rassgati

Re: icesave - Já / Nei

Postby UnnarÓ » Fri 08. Apr 2011 20:13

gstuning wrote:
UnnarÓ wrote:Þar sem það er allavega ekkert að fara að gerast meðan þetta bíður óleyst.

Það er akkúrat ekkert sem segir það.

Við erum bara að framlengja ástandið sem hefur verið viðvarandi hér síðustu tvö ár. Mikil óvissa og allir halda að sér höndum því þeir geta ekki séð fram í tímann hvernig málið endar.

bimmer wrote:
UnnarÓ wrote:
bimmer wrote:
UnnarÓ wrote:Þar sem það er allavega ekkert að fara að gerast meðan þetta bíður óleyst.

Hvað akkurat gerist við samþykki ICESAVE sem að veldur því að eitthvað fari að gerast hérna??

T.d. með samþykki batnar lánshæfismatið sem er liður í því að minnka óvissu sem er helsti Þrándur í Götu hvað varðar fjárfestingar og batnandi atvinnumál.

Við erum skuldsett upp í rjáfur - eigum við semsagt að taka á okkur Icesave skuldaklafann til þess
að geta tekið enn meiri lán?

Ertu viss um að það sé það sem þarf?

Vantar okkur peninga til framkvæmda? Eru ekki til nógir peningar í bönkunum hér heima?
Þarf ekki frekar að stilla af vaxtastigið hér þannig að þeir peningar fari í umferð????

Ég er ekki að segja að já sé einhver draumalausn, þetta er þó óneitanlega skynsamari lausnin af þessum tveimur.
UnnarÓ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 444
Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Location: RVK

Re: icesave - Já / Nei

Postby UnnarÓ » Fri 08. Apr 2011 20:18

Lindemann wrote:Málið er einfaldlega það að það er enginn grundvöllur eða heimild til þess fyrir ríkisstjórnina að semja um "hvað við eigum að borga mikið" fyrr en að er búið að skera úr um það með dómsúrskurði hvort við eigum yfir höfuð að borga eitthvað.
Þegar er búið að dæma um það er fyrst réttlætanlegt að semja um upphæðina, EF við erum dæmd til að borga.

Það er alltaf áhætta að fara í dómsmál, en það er ekki forsvaranlegt að nota það sem afsökun í svona stóru mál. Þetta gæti líka orðið fordæmisgefandi svo þetta skiptir ekki bara Íslendinga máli.

Ef við erum dæmd til að borga þá erum við ekki í neinni stöðu til að semja. Myndum aldrei fá neitt í líkingu við það sem núna er á boðstólum.

Og einmitt þegar málið er svona stórt á maður miklu frekar að velta áhættunni fyrir sér.
UnnarÓ
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 444
Joined: Wed 21. Feb 2007 22:15
Location: RVK

Re: icesave - Já / Nei

Postby ValliFudd » Fri 08. Apr 2011 20:19

Hvernig í ósköpunum getur lánshæfi ríkissjóðs batnað við að bæta við sig ábyrgðum á 600-1200 milljörðum? Með "já" er verið að færa ábyrgðina af tryggingasjóði yfir á ríkið.
Þó sumir segi að ríkið þurfi líklega ekki að borga neitt og eitthvað í þá áttina, erum við samt að skrifa undir sem ábyrgðarmenn á um EITT ÞÚSUND MILLJÖRÐUM. Hvernig í ósköpunum getur það látið banka út í hinum stóra heimi vera viljugri til að lána okkur pening :lol:
User avatar
ValliFudd
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5709
Joined: Mon 26. May 2003 22:39
Location: Reykjavík

Re: icesave - Já / Nei

Postby SiggiGS » Fri 08. Apr 2011 20:29

SteiniDJ wrote:Það sem ég las varst þú að segja að fólk ætti að kynna sér þetta eða sleppa því að kjósa. Það sem ég segi er að það er óraunhæft að biðja um það, ómögulegt í framkvæmd og ekki sanngjarnt eða lýðræðislegt. En hverjum er auðvitað frjálst að hafa sínar eigin skoðanir.

Það sem þarf hingað er hnitmiðuð og létt fræðsla um kosti og galla þess að segja já eða nei, frá hlutlausu sjónarmiði. En ég held að þeir sem eru í þeirri stöðu að geta boðið upp á slíka fræðslu (þ.e. hafa fjármagn og getu til þess að koma þessu frá sér) eru allt nema hlutlausir.

Annars hefur umræða um þetta mál verið svo mikil síðan allt hrundi að þeir sem þekkja EKKERT um málið eru ekki á hverju strái í dag. Spurningin er hvort sú umræða hafi kennt þeim nógu mikið til að þeir geti tekið rökstudda ákvörðun um hvort eigi að segja já eða nei.

Alltaf gaman að fá staðfestingu á því :thup:

En ég vona að menn hafi séð kastljósið, góður þáttur..
BMW Z3 '98
User avatar
SiggiGS
Kassabílstjóri
 
Posts: 112
Joined: Sat 27. Feb 2010 16:05

Re: icesave - Já / Nei

Postby SteiniDJ » Fri 08. Apr 2011 20:37

SiggiGS wrote:

Já, það er gott að þú vitir það. ;)
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: icesave - Já / Nei

Postby Maddi.. » Fri 08. Apr 2011 20:37

Mér fannst hann einmitt ekkert sérstakur.
Fer mikið í taugarnar á mér hvernig Steingrímur kemur oft á tíðum fram við mótherja í rökræðuþáttum.
User avatar
Maddi..
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1422
Joined: Fri 06. Feb 2009 20:21
Location: Kársnesið

Re: icesave - Já / Nei

Postby SiggiGS » Fri 08. Apr 2011 20:40

Maddi.. wrote:Mér fannst hann einmitt ekkert sérstakur.
Fer mikið í taugarnar á mér hvernig Steingrímur kemur oft á tíðum fram við mótherja í rökræðuþáttum.

Já, Steingrímur getur verið alveg óþolandi, en Sigmundur stóð sig vel :wink:
BMW Z3 '98
User avatar
SiggiGS
Kassabílstjóri
 
Posts: 112
Joined: Sat 27. Feb 2010 16:05

Re: icesave - Já / Nei

Postby SteiniDJ » Fri 08. Apr 2011 20:43

Steingrímur má alveg eiga það, að þrátt fyrir hvað hann er einstaklega leiðinlegur og vitlaus pólitíkus, þá er oft gaman að fylgjast með því sem honum dettur í hug... þegar það hefur ekki áhrif á heila þjóð.

Hérna og svo þegaði hann gargaði á ræðumann á sínum tíma. :lol:
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: Baidu [Spider] and 21 guests