Ég er alveg sammála þér og sem betur fer hef ég ekki þurft að eiga mikil viðskipti við bílasölur í gegnum tíðina.
Sem dæmi gerði ég allt sem mögulega hægt var að gera til þess að selja 2006 árg. af Yaris hratt og örugglega á síðasta ári sem kærastan átti. Bíllinn var í algjöru toppstandi, stífbónaður, nýskoðaður, nýsmurður og á nýjum dekkjum. Ég aulýsti hann á barnalandi, hérna, L2c, Geiranum og fór með hann og skráði á Diesel.is, Netbílar.is og á Toyotasalnum hérna suðurfrá. Allir bílasalarnir sögðu að bíllinn myndi seljast hratt þar sem að hann væri í toppstandi og akkúrat það sem fólk væri að leita að. Diesel og Netbílar settu það verð á bílinn sem ég vildi(undir markaðsverði) en ekki Toyotasalurinn þar sem að jú þeir vilja halda verðinu á þessum bílum uppi og var sölumaðurinn ekki til í að setja það verð sem ég vildi setja á bílinn og sagði m.a. að bíllinn myndi ekki seljast á því verði sem ég vildi.
Tveimur mánuðir liðu og ég gafst upp og lækkaði verðið enn meira nema Toyotasalurinn sem neitaði að lækka verðið og var bara með hroka og kjaft. Bíllinn seldist á innan við viku frá lækkuninni og sölumennirnir í Toyota voru kjaftstopp yfir því hvað bíllinn seldist hratt og jafnframt reiðir yfir því hvað ég seldi bílinn á góðu verði.
P.S. Til þess að toppa þetta, þá afhentu bílasalarnir bílinn án leyfis frá mér og án þess að ég væri búinn að fá greiðsluna í hendurnar! Ég þurfti að hringja í sífellu og reka á eftir þeim og alltaf kom "Já peningurinn er á leiðinni". Ég fékk ekki peninginn fyrr en tveimur dögum eftir afhendingu og þá með því að hóta að fara með málið í lögfræðing
