BMW e36 touring

Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

BMW e36 touring

Postby 98.OKT » Sat 02. Apr 2011 19:36

Jæja þar sem e46 bíllinn er seldur og Skoda tík komin í staðin sem fjölskyldubíllinn, þá vantaði mig annan til að komast til og frá vinnu þar sem konan er alltaf á hinum, þá fann ég þennan forláta 318 ia touring

Þetta virðist vera fínasta eintak, enda ekkert rosalega mikið ekinn m.v. árgerð en hann er 1997 árgerð og ekinn um 177.000
Hann hefur verið heilsprautaður einhverntímann á seinustu árum enda er lakkið mjög gott, nánast ekkert grjótbarinn,
og lítið sem ekkert ryð.
Það þarf engu að síður aðeins að klappa honum eins og gerist og gengur, en það helsta er:

Panta nýja númeraplötu að framan þar sem ég hata ljótar plötur (græja það á mánudag)
Fá nýja afturgorma þar sem báðir eru brotnir
Framljósin eru ljót svo mig vanta ný ef einhver á og vill selja
Skipta út appelsínugulu stefnuljósunum fyrir glær (búinn að panta þau svo ég er búinn að redda því)
Laga pústleka (en það verður gert núna á mánudaginn í bjb)
Massa lakkið (búinn að því)
Skipta um bremsuklossa að aftan og jafnvel diskana þar sem bremsurnar eru hálf fastar öðru megin (redda því næstu helgi)
Og afturdekkin eru orðin slöpp svo því verður reddað í vikunni.

En hérna eru nokkrar myndir af honum eins og hann er orðinn núna
Last edited by 98.OKT on Mon 16. Jan 2012 15:06, edited 2 times in total.
BMW e53 X5
Honda CRV
Gas Gas 450 FSE
98.OKT
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1154
Joined: Mon 09. Jun 2003 16:50
Location: Reykjavík

Re: BMW e36 touring

Postby JOGA » Sat 02. Apr 2011 19:40

Flottur þessi. Til hamingju með vagninn :thup:
BMW E46 ///M3 04.2003
Land Rover Discovery 3 04.2007
Ski Doo Summit X 800 151" - 2006
5xE30,E32,E34,4xE36,E39,E53 - Seldir
User avatar
JOGA
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3886
Joined: Thu 07. Jul 2005 09:43
Location: Bíldudalur

Re: BMW e36 touring

Postby gunnar » Sat 02. Apr 2011 20:15

Þessi er bara flottur! :thup:

E36 Touring mafia 8)
Image
BMW E30 328i Coupe
User avatar
gunnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11549
Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Location: Reykjavík

Re: BMW e36 touring

Postby 98.OKT » Sat 02. Apr 2011 20:21

Takk fyrir það báðir tveir :)

Touring er TÖFF 8)
BMW e53 X5
Honda CRV
Gas Gas 450 FSE
98.OKT
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1154
Joined: Mon 09. Jun 2003 16:50
Location: Reykjavík


Return to Bílar meðlima

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 10 guests