Jæja, eftir að hafa verið latur aftur... þá gerði ég loksins eitthvað smá... ekki mikið samt, maður vill ekki ofgera sér úr framtakssemi..

Sandblés spyrnurnar í afturhásinguna um daginn... og grunnaði þær og málaði svo í dag....

Svaka fínt... sandblásið og svona...

Þar sem ég er svo mikil pempía, að þá slípaði ég niður ójöfnurnar sem voru á endunum...

það var aðeins farið að falla á þetta aftur, svo ég þurfti að draga fram sandpappírinn og slípa þetta aðeins...

Svo grunnaði ég eina umferð....

Og svo aðra....

Svo málaði ég þetta melónugult... en ég er ekki alveg viss... er að spá í að mála þetta svart frekar...
