saemi wrote:
Það sem er að því er að það er ekkert sem bannar það. Það er ekki hlutverk stjórnenda að aga fólk til, heldur að sjá til þess að reglum spjallsins sé framfylgt. Ef það er ekki í reglunum að það megi ekki búa til lélegar söluauglýsingar, þá er stjórnendum ekki stætt á því að stroka út auglýsingar til að "aga fólk til".
Hitt er annað mál að ég væri fyllilega til í að eyða svona löguðu út, gera kröfur um stafsetningu/málnotkun sem er á pari við það sem venjulegt fólk gerir og bara almennt að hækka menninguna á þessu spjalli. Hún hefur bara farið niður á við. En.... þetta er einn ókosturinn við frelsi. Það má hvaða vitleysingur sem er segja og gera það sem hann vill.... innan ákveðinna marka. Svo er bara spurning hvar við viljum setja mörkin. Hver á að ákveða hvar mörkin liggja?
Fyrir mér er þetta í raun sáraeinfalt.
Eigandi (í þessu tilviki væntanlega þá stjórn kraftsins) síðunar ræður því algerlega hver er hérna og getur sett þær reglur sem hann vill.
Fólk virðist rosalega misskilja spjallborð, að það megi láta allt flakka þar.
en eigandi getur einfaldlega ráðið því gersamlega.
Margir vilja meina að þetta kallist ritskoðun, en þetta er í raun ritstjórn, og þar að auki, hver bannar ritskoðun á einkavef ?
Fengi fólk að ganga eins um, með sama málfar, kjaft og leiðindi í klúbbhúsi ef að það væri til staðar ?
fengi fólk að gera það heima hjá ykkur ?
Ég er nú sjálfur stjórnandi á nokkuð stóru spjallborði, og þar eru einfaldlega reglur, reglur sem að eru yfirfarnar reglulega og reynt að láta fara eftir.
Mér aftur á móti finnst oft stjórnendur hafa verið furðanlega linir hérna.
T.d. hefði ég ekki hikað við að banna hann viktor strax eftir lætin í þræðinum um veðið á bílnum.
Fannst hann einfaldlega ekki haga sér þannig að hann ætti að fá að tjá sig meira.
En síðan er það reyndar annað.
í 99,9% tilvika virðist þurfa voðalega lítið að gera hérna, þar sem að menn kunna jú almennt að haga sér.