
1. tl. 11. gr. tvísköttunarsamnings milli Íslands og Bretlands wrote:1. Vextir, sem myndast í aðildarríki, sem mótteknir eru af aðila sem er raunverulegur
rétthafi þeirra og er heimilisfastur í hinu aðildarríkinu skulu einungis skattlagðir í
síðarnefnda ríkinu
Jss wrote:Ég geri ráð fyrir, og minnir, að þú sért búinn að vera búsettur á Bretlandseyjum síðustu 180 daga og myndirðu því teljast heimilisfastur þar, myndi þó athuga vel 4. gr. tvísköttunarsamningsins sem gildir milli Íslands og Bretlands til að sjá það fyrir víst. Þá þarf að horfa til 11. greinar tvísköttunarsamningsins sem snýr að vaxtagreiðslum. Dreg þá ályktun að þú borgir skatt af vaxtatekjunum í Bretlandi skv. 1. tölulið 11. greinar tvísköttunarsamningsins samanber eftirfarandi:1. tl. 11. gr. tvísköttunarsamnings milli Íslands og Bretlands wrote:1. Vextir, sem myndast í aðildarríki, sem mótteknir eru af aðila sem er raunverulegur
rétthafi þeirra og er heimilisfastur í hinu aðildarríkinu skulu einungis skattlagðir í
síðarnefnda ríkinu
Getur séð þetta hér:
Tvísköttunarsamningur milli Íslands og Bretlands (pdf)
Mjög algengt er þó að skattur sé greiddur af tekjum í upprunalandi tekna, þ.e. þar sem tekjurnar verða til.
Birt án ábyrgðar.
zazou wrote:Áhugavert, ekki að maður sé að hugsa um milljarða, bara nokkrir tugir þúsunda í skatt til eða frá. Meir spennandi er lagaumhverfið.
7.12 Erlendis búsettir
Erlendis búsettir sem hafa tekjur eða eiga eignir hér á landi
Einstaklingar búsettir erlendis sem bera hér á landi takmarkaða skattskyldu samkvæmt 3. grein skattalaganna, vegna tekna, t.d. af útleigu íbúðarhúsnæðis eða sölu hlutabréfa hér á landi, skulu skila framtali þar sem gerð er grein fyrir þessum tekjum á þriðju síðu framtals í lið 3.7, reit 521.
Ef um útleigu íbúðarhúsnæðis er að ræða skal telja fram brúttóleigutekjur án frádráttar. Hafi maður leigugjöld vegna íbúðarhúsnæðis til eigin nota er heimilt að draga þau frá leigutekjum ef þær eru af íbúðarhúsnæði sem ætlað er til eigin nota en er tímabundið í útleigu. Í þeim tilvikum skal draga leigugjöldin frá leigutekjum og ef um jákvæðan mismun er að ræð færist hann í reit 521. Neikvæður mismunur færist ekki á framtal. Gera skal grein fyrir nýtingu íbúðarhúsnæðis sem ekki gefur af sér tekjur í lið 1.4.
Nauðsynlegt er að fram komi að framteljandi eigi lögheimili erlendis. Jafnframt skal tilgreina póstfang umboðsmanns hans á Íslandi.
3.5. Allir aðilar sem eiga fasteign hér á landi eða hafa rétt yfir fasteign hér á landi er þeir hafa af tekjur eða teljast hafa af tekjur, þar með talinn söluhagnað, samkvæmt ákvæðum laga þessara skulu greiða tekjuskatt af þeim tekjum.
3. Tekjuskattur aðila, sem um ræðir í 4., 5., 6. og [9. tölul.]2) 3. gr., sbr. þó 4. tölul. þessarar greinar, skal, ef um mann er að ræða, reiknast af tekjuskattsstofni með skatthlutfalli skv. 1. tölul. 1. mgr. 66. gr. án persónuafsláttar skv. A-lið 67. gr. Tekjuskatt lögaðila, sbr. 3. gr., skal reikna skv. 71. gr.

Gunni wrote:Brynjar ég sé ekki alveg hvað er svona hræðilegt við þetta.
Ef þú ert ekki búsettur á Íslandi hefurðu ekki rétt á persónuafslætti.
Varðandi leigutekjurnar hefurðu heimild til að draga frá greidda leigu, þ.e. ef þú færð 150þ í leigutekjur af íbúðinni þinni og greiðir 150þ
þá seturðu 0 á framtalið.
Gunni wrote:Brynjar ég sé ekki alveg hvað er svona hræðilegt við þetta.
Ef þú ert ekki búsettur á Íslandi hefurðu ekki rétt á persónuafslætti.
Varðandi leigutekjurnar hefurðu heimild til að draga frá greidda leigu, þ.e. ef þú færð 150þ í leigutekjur af íbúðinni þinni og greiðir 150þ
þá seturðu 0 á framtalið.

Users browsing this forum: No registered users and 57 guests