Hvað halda menn eiginlega?
Að ég sitji hérna bruggandi launráð eða hvað?
Að ég sé búinn að stunda kraftinn og stunda viðskipti við bílaáhugamenn lengur enn krafturinn hefur verið til að ég
sé í alvöru tilbúinn að fórna öllu því sem ég hef gert hingað til með því að ætla skjótast undann hverri þeirri ábyrgð sem á mig mun leggjast. Hefur einhver illt um mig að segja í raun?? Hef ég stungið einhvern einhvern tímann í bakið?
Hef ég ekki lagt úr leið til að aðstoða menn eins mikið og ég get?
Finnst lélegt að menn sem hafa sambandi við mig oft símleiðis eða í PM biðjandi um aðstoð og þess háttar séu í alvöru að ýta undir það að ég stundi eitthvað skrýtin viðskipti.
Aðstæður eru hreinlega þannig að þetta þarf allt að gerast rétt svo það sé enginn séns á vitleysu í mati á hvað kom fyrir.
Ég hef aldrei ýjað að því að ábyrgðin liggi ekki hjá mér eða ekki. Ég ætla bara að tækla þetta algjörlega hlutlaust
eins og þriðji aðili myndi gera. Og mun glaður sýna allt sem ég kemst að svo að hverjir aðrir geta metið hlutina
sjálfir. Ég er ekkert smeykur við gagnrýni, ég veit það sem ég veit, ef þetta leggst á mig, þá þarf ég að reyna
finna útúr því afhverju var ekki hægt að detecta detonation og svo fór sem fór og læra af því. Annars
er þetta allt algjörlega tilgangslaust í raun.
Ég er ekkert að fara taka vél uppúr þessum bíl hérna útá plani þar sem ég bý í smá blokk. Ég meina ég fékk harðorða tilkynningu frá landlord því það hafði sést olíublettur undan Opelnum mínum og ég fengi að sæta sektar ef það verður enn þar þegar ég flyt.
Það er búið að redda því að fá að rannsaka vélina í skólanum, þetta sparar ótrúlegt vesen þegar vélin er kominn uppúr og það er búið að versla það sem í hana þarf að fara að þá er hægt að setja hana samann í besta mögulega umhverfinu. Og ég þarf ekki að vera keyra í 50mín eina leið til að komast að vélinni.
Bílinn þarf að komast héðan til að hægt sé að taka vélina og tilheyrandi úr. Þar sem ég vinn eru tvö verkstæði, eitt er yfir fullt af bílum öllum stundum og ekki hægt að geyma bíl þar til lengdar ef menn vilja að af honum sé ekki stolið dóti eða skemmt þar sem að hann þyrfti að vera úti. Þetta er ekkert eins og á Íslandi þar sem bílar standa fyrir utan verkstæði, ef þeir eru skildir eftir fyrir utan hérna í Englandi, þá hreinlega verða þeir ekkert þar daginn eftir eða búið að skemma þá.
Hitt verkstæðið er fullt af heimilistækjum þar sem að yfirmaður minn er með þetta verkstæði á lóð sem konan hans og tengda pabbi eiga, þar inni eru hin fínasta aðstaða til að taka vélina úr og rífa í sundur og svo geyma bílinn inni þar sem að hann er óhultur. Vandamálið er að verkstæðið er alveg kjaftfullt af heimilistækjum því það er verið að klára byggja nýja skemmu á landinu undir þessi heimilistæki. Skemman er að því sem ég best veit ready, það þarf bara að fá þetta lið til að flytja draslið á milli.
Ég er búinn að ýta á yfirmann minn, hann á konuna sína og hún fjölskyldu sína, það vonandi tæmist sem allra allra fyrst. Þá fer bílinn beinustu leið á verkstæðið, vélin úr og allt í spað. Þaðann fara vélarpartar og tengt í skólann, þar sem að hægt verður að setja vélinna samann. Ef menn vilja fá brot eða hvað sem ég finn í vélinni sent til sín þá geri ég það með glöðu geði.
Ég veit ekki hvernig ykkar dagar eru enn mínir eru þannig að ég hef engann frítíma , EVER.
Ef ég sit ekki í tíma , þá er ég að gera verkefni. Skólinn endar ekkert og ég hef svo restina af deginum til að gera ekki neitt.
Ég geri verkefni alla frístundir þess á milli sem ég er í skólastofu og sofandi, virka daga sem og helgar.
Núna er alveg brjálæðasta verkefna törn sem ég hef lent í, sem endar 8.Apríl þegar ég kemst í páskafrí.
Þá eru öll verkefni búin fyrir próf(miðjann Maí) fyrir utan lokaverkefnið og ég er "laus" til 26.Apríl til að gera annað enn skólahluti að miklu leiti. Eftir það byrjar skóli aftur enn þar sem að það eru engin verkefni þá verður þetta soldið eins
og framhaldskóli er.
Ég hefði viljað þetta úr fyrstu helgina svo hægt væri sjá hver staðan var, enn það kom fyrir ekki, og svo ekki helgina eftir það og svo aftur og aftur.
Hvað sem leggst á mig mun leggjast á mig. Kostnaðurinn gæti verið ljótur eða alveg útúr kortinu fáránlegur.
Hvað sem því líður þá verður það tæklað þegar að því kemur. Peningur er bara peningur og það er alltaf hægt að vinna sér inn meiri pening.








