Þetta er enn að gerast hjá mér. Ég fór með hann í tb og lét lesa af honum og þeir sögðu
að hann væri að kvarta yfir einhverjum stýrisgormaskynjara.
Eins og Sveinbjörn segir hérna, eitthvað með LIMP mode. Það hefur sprungið dekk hjá mér,
gæti það verið ástæðan? Hvernig get ég lagað það?
Það kostar góðan pening að skipta um þennan stýrisgormaskynjara. Tými því ekki ef þetta verður svo enn.
Þegar ég kveiki á bílnum þá logar þetta ljós oftast
ekki, en um leið og ég er kannski búinn að
keyra 5-30 mín þá kviknar á því. Þessum þríhyrningi og handbremsuljósinu en það er gult á litinn
ekki rautt. Þá fer skriðvörnin og spólvörnin af. Þegar ljósin eru ekki þá virka varnirnar alveg 110%.
Þetta er BARA pirrandi dæmi!!!