Bilanagreina hita í framrúðu

Hérna getur þú varpað fram spurningum um tæknilega hluti eða þá deilt visku þinni með hinum um BMW.

Bilanagreina hita í framrúðu

Postby Einsii » Fri 11. Mar 2011 10:32

Sælir.
Þetta ætlar alveg að fara með mig, ég er að reyna að fynna út afhverju hitinn í framrúðunni á 750 bílnum virkar ekki.
Það er element undir þurkunum sem á að halda þvi svæði og þurkunum svona mátulega ófrosnu.
En hjá mér virðist þetta ekki hitna og held ég að rúðupiss stútarnir sem eiga að fara í gang með rúðunni geri það ekki heldur.

Rúðan og elementið er nýtt, ég er búinn að opna gluggapóstinn farþegamegin og sé þar að tengið fyrir elementið er vel í tenginu, klikkaði reyndar á að mæla hvort það kæmi straumur á það því ég var með bílinn inni i 20° hita og þessi búnaður fer ekki í gang fyrren hitinn fer undir 3°.
Ég er búinn að skoða öll öryggi sem ég fynn bæði í húddi og skotti, Ég reyndi að mæla útleyðslu á rúðupissstútunum sem mér þótti alveg eins lýkleg skýring, það gekk samt eitthvað illa en miðað við þær mælingar leiðir ekki út.

Mér dettur í hug að þetta gæti verið relayið sem á að kveikja á þessu en ég fynna bara hvergi neinn lista yfir relay í bílnum og hvar þau eru, svo er líka spurning hvort stýringin fyrir þetta geti verið með vesen en ég veit ekki hvað stýrir þessu eða þá hvar ég fynn það :)

Einhver hér sem hefur skoðað þetta og er með hugmyndir ?
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Re: Bilanagreina hita í framrúðu

Postby Einsii » Sat 12. Mar 2011 10:38

Á ég bara að bíð eftir vorinu og hætta að spá í þessu ? :)
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Re: Bilanagreina hita í framrúðu

Postby sh4rk » Sat 12. Mar 2011 10:50

já ætli það ekki :lol: En þetta er svona í E32 líka og ég hef ekki vitað til þess að það hafi virkað hjá mér
Siggi
E23 735i
E32 740i 6 spd 8)
E38 740d
E32 735i Shadowline Seldur
E32 740i Seldur
E32 740i RIP
User avatar
sh4rk
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2837
Joined: Sat 14. Sep 2002 18:05
Location: Reykjavík

Re: Bilanagreina hita í framrúðu

Postby Einsii » Sat 12. Mar 2011 13:06

Þetta er bara svo glatað á E38 því þurkurnar fara undir húddið og ekki séns að hreinsa þær eða þetta svæði nema drepa á bílnum þegar þær eru í efstu stöðu og berja svo af þeim.

þannig að ef veðrið er einsog það er búið að vera hér fyrir norðan þarf maður að drepa á bílnum í vegkannti til að hreynsa og sjá eitthvað út.
Einsii
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2413
Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Location: 105 Reykjavík

Re: Bilanagreina hita í framrúðu

Postby ömmudriver » Sat 12. Mar 2011 20:50

sh4rk wrote:já ætli það ekki :lol: En þetta er svona í E32 líka og ég hef ekki vitað til þess að það hafi virkað hjá mér


Svínvirkaði í E32 hjá mér og ég er meira að segja búinn að láta skipta um framrúðu í henni :D
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590
ömmudriver
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5955
Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Location: Litla Ameríka


Return to Tæknilegar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 3 guests