Thor Energy Zolutions

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: Thor Energy Zolutions

Postby JonHrafn » Fri 04. Mar 2011 22:18

Ibzen wrote:
JonHrafn wrote:Væri alveg til í að prófa sprauta smá vetni inn á 20ára gömlu 3.0 tdi toyotu vélina okkar sem er að eyða 14-17 lítrum. Engir skynjarar og ekkert vesen.


Virkar þetta bæði á bensín og diesel vélar?


Ég skildi þetta allavega þannig já.
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Re: Thor Energy Zolutions

Postby zazou » Fri 04. Mar 2011 22:22

HAMAR wrote:Ef þetta virkar eins og þeir segja þá erum við að horfa uppá að gaurarnir hjá tezpower.com
verði milljarðamæringar framtíðarinnar :shock:

Gazilljarðamæringur heldur :shock:
http://www.msnbc.msn.com/id/29899191/
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS
User avatar
zazou
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2610
Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Location: London

Re: Thor Energy Zolutions

Postby Bjarkih » Fri 04. Mar 2011 22:26

Ibzen wrote:
JonHrafn wrote:Væri alveg til í að prófa sprauta smá vetni inn á 20ára gömlu 3.0 tdi toyotu vélina okkar sem er að eyða 14-17 lítrum. Engir skynjarar og ekkert vesen.


Virkar þetta bæði á bensín og diesel vélar?


Vetni er náttúrulega bara ein tegund eldsneytis þannig að það ætti alveg að vera. Ég myndi hinsvegar kanna þjöppuþolið á því áður en ég mixaði við diesel.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Re: Thor Energy Zolutions

Postby gstuning » Fri 04. Mar 2011 22:59

Menn ættu að fara varlega með vetni sem eldsneyti það hefur alveg gífurlega mikinn brunahraða miðað við
önnu eldsneyti byggð á Carbon og Vetni samann.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Re: Thor Energy Zolutions

Postby gulli » Fri 04. Mar 2011 23:27

IceDev wrote:
gulli wrote:
gstuning wrote:Ég ákvað að pósta á þenna þráð þarna.

Þessi Sveinn þór hefur augljóslega mjög takmarkaðann skilning á virkni véla.


Afhverju áttu svona erfitt með að trúa að þetta virki ? :|


Af hverju áttu svona auðvelt með að trúa að þetta virki?

Sönnunarbyrgðin liggur ekki hjá efasemdafólkinu, sönnunarbyrgðin liggur hjá seljanda.

Viltu taka mark á manni sem hefur beinan hagnað á því að fólk trúi honum og minntist á það að hugmyndin spratt upp úr teikningum á internetinu eða efasemdafólki á borð við Gstuning, sem er menntaður mótorsportverkfræðingur?


Hef ekkert fyrir mér nema reynslusögur manna,, sem ég tel vera það sem skiptir máli í svona löguðu.
gulli
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2195
Joined: Fri 17. Sep 2004 02:24

Re: Thor Energy Zolutions

Postby Kristjan » Fri 04. Mar 2011 23:32

Blah fólk sem trúir á svona vitleysu fæðist á hverjum degi.
Enginn BMW
User avatar
Kristjan
Formúlubílstjóri
 
Posts: 8507
Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Location: 101 RVK

Re: Thor Energy Zolutions

Postby Svezel » Fri 04. Mar 2011 23:41

OK segjum sem svo að þetta virki, þ.e. að með því að skjóta vetni inn í soggreinina þá verði bruninn betri og nýting á eldsneytinu meiri sem er væntanlega hugmyndin með þessu apparati. Segjum líka svo að þetta hafi ekki slæm áhrif á brunraýmið með væntanlega auknum hita og brenni ekki ventla, stimpla o.s.frv né yfirkeyri rafalinn.

Væntanlega munu allir bílar með O2 skynjara átta sig á þessari undanlegu nýju lean blöndu fyrr eða síðar og þá fer tölvan í bílnum að auka opnunartíma spíssa til að "af-leana" bílinn. Fer hann þá ekki bara að eyða meiru og keyra á rangri blöndu?

Ég er ekki að kaupa að þetta muni gera nokkuð nema slæmt í "nýlegum" bílum, hugsanlega etv gerist eitthvað í gömlum fúlum klósettmótorum en í nýjum bílum sem eru orginal frekar lean með nóg af skynjurum til að stilla blönduna sem best hlýtur þetta bara að valda vandamálum.
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Re: Thor Energy Zolutions

Postby HAMAR » Fri 04. Mar 2011 23:42

Hægt að kaupa svona ''pixiedust'' á ebay:
http://cgi.ebay.com/ebaymotors/HYDROGEN ... ccessories
Mazda2 '15
Mercedes Benz 300E 4Matic '89
enginn BMW í augnablikinu :(
User avatar
HAMAR
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2232
Joined: Thu 01. Apr 2004 14:40
Location: ókunnug.

Re: Thor Energy Zolutions

Postby gstuning » Sat 05. Mar 2011 00:12

Svezel wrote:OK segjum sem svo að þetta virki, þ.e. að með því að skjóta vetni inn í soggreinina þá verði bruninn betri og nýting á eldsneytinu meiri sem er væntanlega hugmyndin með þessu apparati. Segjum líka svo að þetta hafi ekki slæm áhrif á brunraýmið með væntanlega auknum hita og brenni ekki ventla, stimpla o.s.frv né yfirkeyri rafalinn.

Væntanlega munu allir bílar með O2 skynjara átta sig á þessari undanlegu nýju lean blöndu fyrr eða síðar og þá fer tölvan í bílnum að auka opnunartíma spíssa til að "af-leana" bílinn. Fer hann þá ekki bara að eyða meiru og keyra á rangri blöndu?

Ég er ekki að kaupa að þetta muni gera nokkuð nema slæmt í "nýlegum" bílum, hugsanlega etv gerist eitthvað í gömlum fúlum klósettmótorum en í nýjum bílum sem eru orginal frekar lean með nóg af skynjurum til að stilla blönduna sem best hlýtur þetta bara að valda vandamálum.


Hugmyndin er að brenna mixtúru með meira vetni, þar sem að vetni er orkugjafa einn og sér og í gas formi þá mixast það mjög vel við venjulega bensín mixtúru.

Í raun ef þú dælir meira eldsneyti í vélina við sömu loftflæði mælingu þá mun bílinn vera ríkari enn áður, Þ.e þú hefur í raun skipt út lofti fyrir eldneyti.

Það sem ég get ýmindað mér að breyti afli úr vélinni er breyttur brunahraði út frá meira vetni í mixtúrunni.
Þetta þýðir að örugga seina kveikjan er núna nær því að vera ideal til að mynda best nýtanlega þrýstinginn á réttum sveifarás tíma ( sama og að flýta kveikju til að fá meira afl fyrir sama loft og bensín).
Þar af leiðandi er þetta betra á eldri bíla heldur enn nýja, og tilgangslaust á glænýja bíla sem eru kveikjulega séð ideal.

Annað sem myndi eingöngu ganga til að promota svona vöru er hvenær orka er tekin úr rafkerfinu til að framleiða rafgreiningu. Ekkert að því að taka eins mikinn straum og hægt er þegar þú ert í gír að hægja á þér. Eins og þegar þú rennur meira og minna niður brekku án þess að vera á gjöfinni þá er vélin ekki að taka inná sig bensín og aflið sem flutti þig upp
brekkuna er ekki fengið tilbaka á neinn hátt. Þannig að rofi sem kveikir á þessu þegar er sleppt bensíni og ýtt á bremsu á meðan bílinn er í gír væri í fínu lagi og í raun engri bensín orku eytt í að mynda vetni.

Til að prófa svona ætti að vera ekkert mál að tengja þetta kerfi , setja bílinn á Cruise control á 90kmh og kveikja á tækinu og fylgjast með spíssatímanum á bensín spíssunum sem og opnunar prósentu á gjöfinni .
Ef þetta virkar þá minnkar gjöfin (því nú þarf ekki jafn mikið loft eins og áður til að mynda sama afl) og þá minnkar spíssa opnunartíminn því það þarf ekki jafn mikið bensín og áður.


Best er auðvitað bara að gera þetta á dyno, hafa steady gjöf og kveikja á dótinu, það myndi mælast afl aukning alveg strax.
Láta kerfið ganga inn og út til að bera samann cyclic breytingu frá ON / OFF
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

Re: Thor Energy Zolutions

Postby GudmundurGeir » Sat 05. Mar 2011 11:51

Eins og er búið að koma fram hér þá þarf nánast jafnmikla orku til að rafgreina vatnið og orku sem þú færð útúr því að brenna vetnið...

Er ekki bara málið með þetta dót, að þarna er verið að setja vetni saman við andrúmsloftið sem fer inná vélina og brennur svo með eldsneytinu. Þegar vetni er brennt þá verður til vatn, eða gufa. Þegar þetta er brennt þá verður til gufa inní brunarýminu, sem við svona mikinn hita þenst út.

Bara hugmynd...

Vatnsinnspítingar eru til... en spurning hversu vel þetta fer með vél sem er ekki hönnuð fyrir þetta.
Guðmundur Geir Einarsson
Porsche 944S2 -> LS1
BMW 330xd Touring
Nissan Micra 2,0GTi
Hyundai Terracan
Image
User avatar
GudmundurGeir
Getawaybílstjóri
 
Posts: 514
Joined: Wed 31. Mar 2004 13:58
Location: Reykjavík / Sjórinn

Re: Thor Energy Zolutions

Postby Wolf » Sun 06. Mar 2011 23:52

Þetta hjá mbl er sett upp eins og pjúra auglýsing og líkist ekki frétt frekar en rassgatið á mér, hvernig treystir svona virðulegur snepill sér í að gefa auglýsingar fyrir svona vafasamt dæmi?

Það væri þá sumsé hægt að taka nýjan dísil vw polo sem er 75hö mengar 99g og eyðir að meðaltali 3,8 L ,,,, hann væri þá eftir breytingu um 98hö mengar 30g og eyðir 2,7 l á hundraðið,,,,þar sem þetta er til í hinum ýmsu típum fyrir alla bíla....

right right....
"I have not taken any drugs ore anything for a whole week now!" -Oh really? "Yeah, and feel so good I wanna get high!"
-Cheech&Chong

BMW E60 525i xDrive 2008
Wolf
Getawaybílstjóri
 
Posts: 764
Joined: Wed 11. Jun 2003 00:53

Re: Thor Energy Zolutions

Postby ppp » Mon 07. Mar 2011 08:25

Var einmitt að spá í því í gær hvernig stendur á því að þessi blessaði fréttmaður hefur ennþá vinnu.

Hann klárlega vann enga heimavinnu þegar hann skoðaði þetta fyrst, og núna jafnvel eftir allt shitstormið er ekki einusinni búið að pósta framhaldi á þessari frétt. Engin frekari rannsókn.

Þetta er í raun bara ósmekkleg auglýsing, og heldur betur lækkar álit mitt á mbl.is.
335i e92 (JB4, downpipes og margt fleira gúdderí.)
330d e46 (Mr. X!)
User avatar
ppp
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1145
Joined: Fri 09. Oct 2009 13:41

Re: Thor Energy Zolutions

Postby Bjarkih » Mon 07. Mar 2011 08:56

Wolf wrote:Þetta hjá mbl er sett upp eins og pjúra auglýsing og líkist ekki frétt frekar en rassgatið á mér, hvernig treystir svona virðulegur snepill sér í að gefa auglýsingar fyrir svona vafasamt dæmi?

Það væri þá sumsé hægt að taka nýjan dísil vw polo sem er 75hö mengar 99g og eyðir að meðaltali 3,8 L ,,,, hann væri þá eftir breytingu um 98hö mengar 30g og eyðir 2,7 l á hundraðið,,,,þar sem þetta er til í hinum ýmsu típum fyrir alla bíla....

right right....


Ansi langt síðan mbl taldist til virðulegra miðla :(
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603

Re: Thor Energy Zolutions

Postby Jón Ragnar » Mon 07. Mar 2011 09:04

Bjarkih wrote:
Wolf wrote:Þetta hjá mbl er sett upp eins og pjúra auglýsing og líkist ekki frétt frekar en rassgatið á mér, hvernig treystir svona virðulegur snepill sér í að gefa auglýsingar fyrir svona vafasamt dæmi?

Það væri þá sumsé hægt að taka nýjan dísil vw polo sem er 75hö mengar 99g og eyðir að meðaltali 3,8 L ,,,, hann væri þá eftir breytingu um 98hö mengar 30g og eyðir 2,7 l á hundraðið,,,,þar sem þetta er til í hinum ýmsu típum fyrir alla bíla....

right right....


Ansi langt síðan mbl taldist til virðulegra miðla :(



Mogginn er fínt blað :thup:

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Re: Thor Energy Zolutions

Postby gstuning » Mon 07. Mar 2011 12:07

Ég og prófesorinn minn vorum að hlæja að þessu í dag.
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image
User avatar
gstuning
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15135
Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Location: Spenge, DE

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 113 guests