Ég skilaði inn Chevrolet og þeir sendu mér í uppgjörinu viðgerðarreikning uppá himinháa upphæð og svo þegar ég fór að rýna ennþá betur í pappírana þá voru þetta samanlagðir tveir reikningar, annar af Chevrolettinum upp á eitthvað lítið og hinn af Toyota Avensis station sem þurfti nánast að skipta um framenda á útaf skemmdum. Sendi þeim póst til baka og mótmælti þessum mistökum. Það er liðið meira en ár síðan og ég er ekki ennþá búinn að fá svar

En þegar ég skilaði inn bílnum þá prentaði ég út ítarlegan lista sem ég tók fram allt viðhald sem ég gerði, hvenær og hversu mikið bíllinn var ekinn. Í þeim lista voru einmitt diskar og klossar að framan og klossar að aftan og í uppgjörinu var ekki tekið fram að það þurfti að skipta um diska né klossa. Eina sem var tekið fram var bara það sem var að bílnum, rispur neðst á stuðurunum og bilaður skynjari.