bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Tue 17. Jun 2025 22:53

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 69 posts ]  Go to page 1, 2, 3, 4, 5  Next
Author Message
 Post subject: E38 750ia Bókhaldið
PostPosted: Thu 24. Feb 2011 10:16 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Posts: 2413
Location: 105 Reykjavík
Eignaðist í gær grænann bíl, grænni bíl en flestir príusar reyndar..
Ég ímynda mér að flestir hér kannist við hann, enda aksturinn einn og sér er eitthvað sem menn taka eftir :)
Bíllinn hefur fengið alveg ótrúlegt viðhald hjá síðasta eiganda og "Bloggað" um allt saman á blýfæti.

Ég hef sennilega aldrei lagt á mig eins mikla ransóknarvinnu við kaup á bíl einsog þessum.. Ég er búinn að tala við öll stóru nöfnin í bransanum og þá sem sáu um allt viðhald á honum síðustu ár hér á Akureyri.
Allir voru sammála að þrátt fyrir pirrandi mikinn akstur þá sé bíllinn í topplagi þar sem það skiptir máli, mótor, skipting, bremsur, allir hlutir að innan og utan virka og það er bara ekkert svona, "Þetta ljós kom í gær" eða "þetta hefur bara aldrei virkað" Semsagt góður bíll sem keyrir æðislega og ekkert skrölt.

En hann er reyndar ekki fullkominn, útlislega séð er honum best lýst sem sjúskuðum, Lakkið er frekar slæmt á sumum stöðum og ég þarf að ganga frá hlutum einsog hurðarspjöldum og þannig inni í honum og listum ofl. að utan. Samt hlutir sem ég get dundað í sjálfur og geta ekki verið dýrir eða erfiðir.

Þetta er einsog gefur að skilja bíll sem ég hugsa mér að eiga eitthvað, því ég fór að sjálfsögðu út í þetta vitandi að "gamall" V12 keyrður hátt í 300k selst ekkert á fyrsta degi hversu góður sem bíllinn er :)

En allavega, ég er rétt búinn að keyra bílinn heim frá því ég eignaðist hann og mun kanski seigja meira frá honum eftir fyrsta bón.
Fyrir þá sem ekki hafa kveikt á því hvaða bíll þetta er læt ég með mynd frá fyrri eiganda.
Og já ég ætla mér að halda áfram með rekstrar bókhaldið um bílinn og jafnvel pósta öllu saman á netið.

Image

Image

Image

En ég held svona heilt yfir að þá hafi ruglið tekist nokkuð vel hjá mér í þetta skiptið. 8)


Last edited by Einsii on Thu 31. Mar 2011 16:45, edited 5 times in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 24. Feb 2011 10:24 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Wed 09. May 2007 20:41
Posts: 1332
Flott mál að það eignaðist hann eitthver með viti :wink:

_________________
00' E38 750i


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 24. Feb 2011 16:59 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 06. Jun 2009 19:11
Posts: 148
Location: Kópavogur
Einsii wrote:
Þetta er einsog gefur að skilja bíll sem ég hugsa mér að eiga eitthvað, því ég fór að sjálfsögðu út í þetta vitandi að "gamall" V12 keyrður hátt í 300k selst ekkert á fyrsta degi hversu góður sem bíllinn er :)


Hvaða árgerð er hann? Hvaða litur er þetta á honum? :wink:

_________________
BMW 325IS coupe 93'
Image
BMW 740IA 95' (seldur)


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 24. Feb 2011 17:51 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Posts: 2413
Location: 105 Reykjavík
tomeh wrote:
Einsii wrote:
Þetta er einsog gefur að skilja bíll sem ég hugsa mér að eiga eitthvað, því ég fór að sjálfsögðu út í þetta vitandi að "gamall" V12 keyrður hátt í 300k selst ekkert á fyrsta degi hversu góður sem bíllinn er :)


Hvaða árgerð er hann? Hvaða litur er þetta á honum? :wink:

Hér kemur þetta bara í heild sinni, mikið af merkilegum búnaði þarna

Vehicle information
   
VIN long  WBAGG21080DG25808 

Type code  GG21 

Type  750I (EUR) 

Dev. series  E38 () 

Line  7 

Body type  LIM 

Steering  LL 

Door count  4 

Engine  M73 

Cubical capacity  5.40 

Power  240 

Transmision  HECK 

Gearbox  AUT 

Colour  OXFORDGRUEN METALLIC (324) 

Upholstery  STANDARDLEDER/ENGLISCHGRUEN (N8EG) 

Prod. date  1997-10-30 

 
Order options
No.  Description 
235  TRAILER-HITCH WITH REMOVABLE HEAD 

261  SIDE AIRBAG FOR REAR PASSENGERS 

401  SLIDING/VENT ROOF, ELECTRIC 

416  SUNBLINDS 

423  FLOOR MATS, VELOUR 

428  WARNING TRIANGLE 

430  INT/EXT RR VW MIRROR W AUT ANTI-DAZZLE 

441  SMOKERS PACKAGE 

494  SEAT HEATING F DRIVER/FRONT PASSENGER 

496  SEAT HEATING FOR REAR SEATS 

522  XENON LIGHT 

622  SEC.HANDSET IN RR COMPARTMENT F PHONE 

629  CAR TELEPHONE (GSM) W CARD READER FRONT 

761  INDIVIDUAL SUN PROTECTION GLAZING 

801  GERMANY VERSION 

863  EUROPE/DEALER DIRECTORY 

879  GERMAN/OWNERS HANDBOOK/SERVICE BOOKLET 

915  BODY SKIN CONSERVATION, DELETION 

 
Series options
No.  Description 
202  STEPTRONIC 

214  AUTOMATIC STABILITY CONTROL+TRACTION 

216  SERVOTRONIC 

220  SELF-LEVELING SUSPENSION 

245  STEERING COLUMN ADJUSTMENT ELEC 

260  SIDE AIRBAG DRIVER/FRT PASSENGER 

262  HEAD AIRBAG 

295  LT/ALY WHEELS/STAR SPOKE 96 

302  ALARM SYSTEM 

438  WOOD TRIM 

456  COMFORT SEATS, ELECTRIC. ADJUSTABLE 

473  ARMREST, FRONT 

500  HEADLIGHT WASHER SYS/INTENSIVE CLEANING 

534  AUTOMATIC AIR CONDITIONING 

548  SPEEDOMETER WITH KILOMETER READING 

555  ON-BOARD COMPUTER 

806  3RD STOP LIGHT 

 
Information
No.  Description 
415  SUNBLIND FOR REAR WINDOW 

431  INTERIOR RR VW MIRROR W AUT ANTI-D 

 
 


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 24. Feb 2011 18:24 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Posts: 5326
Location: Keflavík
Mér finnst þessi bara flottur!

Sé ég ekki rétt að hann er full leðraður að innan?

_________________
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 24. Feb 2011 18:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Jul 2007 08:59
Posts: 1870
Topp bíll og votta að felgurnar eru helvíti skemmtilegar :thup: :thup:

_________________
91 BMW 850 (BDS), 05 Mini Cooper S R53


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 24. Feb 2011 19:12 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Sat 06. Jun 2009 19:11
Posts: 148
Location: Kópavogur
Nice, hélt einmitt að þetta væri Oxfordgreen sem er baara flott!

_________________
BMW 325IS coupe 93'
Image
BMW 740IA 95' (seldur)


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 24. Feb 2011 19:27 
Offline
Rallýbílstjóri

Joined: Wed 09. May 2007 20:41
Posts: 1332
Danni wrote:
Mér finnst þessi bara flottur!

Sé ég ekki rétt að hann er full leðraður að innan?


eins og allir E38 750

_________________
00' E38 750i


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 24. Feb 2011 19:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 10. Jun 2003 15:49
Posts: 8506
Location: 101 RVK
Þetta er glæsilegur bíll og á bara eftir að verða betri í þinni eigu.

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Thu 24. Feb 2011 20:16 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Sep 2002 09:13
Posts: 5727
Location: Mosfellsbær
Til hamingju með þennan. Hef aðeins fengið að prófa og sitja í þessum. ;-) Mjög góður bíll.

Einsii wrote:
Ég hef sennilega aldrei lagt á mig eins mikla ransóknarvinnu við kaup á bíl einsog þessum.. Ég er búinn að tala við öll stóru nöfnin í bransanum og þá sem sáu um allt viðhald á honum síðustu ár hér á Akureyri.
Allir voru sammála að þrátt fyrir pirrandi mikinn akstur þá sé bíllinn í topplagi þar sem það skiptir máli, mótor, skipting, bremsur, allir hlutir að innan og utan virka og það er bara ekkert svona, "Þetta ljós kom í gær" eða "þetta hefur bara aldrei virkað" Semsagt góður bíll sem keyrir æðislega og ekkert skrölt.


Þetta er akkúrat málið!

Maður fær það stundum á tilfinninguna að fólk vilji frekar kaupa þreyttan bíl sem er búið að skrúfa niður úr 300þ. í 150þ. frekar en vel viðhaldið bíll sem er ekinn jafn mikið en ekki skrúfaður niður. :lol:

_________________
Ingimar
E30 318i Krókurinn (Barnfind in the making)


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 25. Feb 2011 17:46 
Offline
Getawaybílstjóri
User avatar

Joined: Wed 27. Sep 2006 22:15
Posts: 710
Flottur þessi.
hvaða búnaður er þetta samt 245 STEERING COLUMN ADJUSTMENT ELEC ?

_________________
BMW 735i E32
Subaru 1800 Turbo Yoda


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 25. Feb 2011 17:49 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Posts: 2413
Location: 105 Reykjavík
Orri Þorkell wrote:
Flottur þessi.
hvaða búnaður er þetta samt 245 STEERING COLUMN ADJUSTMENT ELEC ?

Rafstýrð færsla á stíri. Tengt minninu fyrir sætin og fer meira að seigja frá þegar drepið er á bílnum svo það sé auðveldara að standa uppúr honum.. Mega þæginlegt :)


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 25. Feb 2011 22:41 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Sat 24. Feb 2007 20:22
Posts: 140
Location: Akureyri
Það verður gaman að fylgjast með þessum bara batna með aldrinum, ánægjulegt að hann sé í góðum höndum!

kv
Tryggvi

_________________
Enginn BMW


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 05. Mar 2011 12:09 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Thu 03. Jul 2003 19:32
Posts: 2413
Location: 105 Reykjavík
Ok, ég er búinn að bóna einusinni og þá mögulegt að ræða þennann aðeins.

Það er farinn einn tankur af bensíni, hann fór á 17,3 lítrum á hundraðið þar inni er ein ferð til Dalvíkur sirka 80km og rest að mestu innanbæjar.
Mér þykir það alls ekki svo slæmt miðað við að Terrano búð*****inn var að fara með hátt í það og jafnvel nokkuð meira suma mánuðina.
Helsta vandamálið fyrir bensínkortið verður samt að ég keyri þennann bíl meira en jeppann þannig að bensínkostnaður mun alltaf hækka eitthvað.

En hvað um það, bílinn er æðislegt að keyra og finnst mér einsog ég eigi að hafa svona Rolls Royce power reserve mæli í staðin fyrir snúningsmælinn, því manni líður ensog bíllinn eigi alltaf nóg inni undir húddinu.
Þægindin eru algerlega til staðar fyrir alla í bílnum og breytingin frá Terrano er svona þegar ég fer að spá í því eiginlega ólýsanleg, allavega detta mér ekki réttu orðin í hug :lol:

Ég er svo búinn að sjá að annar afturdemparinn lekur og hleðslujafnarinn er óvirkur (búið að aftengja stangirnar sem fylgjast með hæð bílsins og þessvegna gerir kerfið ekki neitt) Sem betur fer sýnist mér hann leka að neðan sem þíðir tveir o hringir en ekki að ofan sem mundi þíða demparinn FUBAR.
Ég þarf bara að redda mér þessum hringjum í réttri stærð og úr rétta gúmmíinu til að redda þessu máli.

Lakkið er enn vont og er ég aðeins búinn að sýna sprautara bílinn, sjáum svo bara til hvort hægt verði að réttlæta eitthvað stórt í því.

Ég ætla svo að halda áfram með rekstarbloggið um mánaðarmót þó sennilega enginn hafi áhuga á þessum rekstri nema ég :)


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 05. Mar 2011 12:19 
Offline
Go-kartbílstjóri

Joined: Sun 26. Apr 2009 15:26
Posts: 454
mætti þér um daginn, lítur mjög smekklega út :thup: :thup:

_________________
Ívar Helgi Grímsson

E34 ///M5 90
E21 315
Zx-6r 06


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 69 posts ]  Go to page 1, 2, 3, 4, 5  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 9 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group