Núna fer að koma tími til þess að fara að skvera þessar felgur sem ég á eitthvað til.
Nema hvað ég er í smá pickles með hvernig ég vill hafa þær.
Lengst af hef ég verið að pæla í að pólera lippið slatta mikið og láta sprauta miðjuna silfur, jafnvel með metallic lit.
Eitthvað svona kannski, þó svo bíllinn sé af óæðri e36 gerð enda eitthvað lítið um góðar myndir af e34 á svona felgum


En svo síðustu daga hef ég af einhverjum ástæðum verið að velta fyrir mér hvort það væri rétt að mála þær allar í einum lit, eða miðjuna í einhverjum öðrum spennandi lit.
Dauðvantar hjálp til að gera upp hug minn í þessu máli.
Annars hvað varðar alvöru mods, þá fer flyið að lenda bráðlega(veit samt ekki hvort það fer í fyrir sumarið) og strut barið frá RD.
Auk þess er búið að festa kaup á enn öðrum hlut sem er kannski ekkert gott að opinbera hvað er, en vitað er að skiptar skoðanir verða á ágæti hlutarins
