Það er náttúrulega ekki við öðru að búast í þetta gömlum bíl en að mig vanti að ditta að einhverju en málið er að mig vantar mælaborð í bílinn og svo væri flott að fá topplúgu fyrir lítið ef einhver á og já ef einhver veit hvernig ég næ miðstöðinni fram til að skipta um perur þá væru góð ráð vel þeigin.
Ég skipti nú um allar perurnar í mínum og það var ekkert mál skrúfaði þetta bara allt laust og þegar millistokkurinn er laus þá eru þetta bara þrjár 70kr perur sem þarf að skipta um. Ég fékk þær á næstu bensínstöð. Alltaf miklu skemmtilegra þegar maður er búinn að skipta um allar sprungnar perur í gömlum bílum.
Ég er ekki enþá búinn að rífa það framm en það virka allavega ekki bensín og snúningshraðamælir svo eru inspection ljósin og það eitthvað vafasamt.. Ætla að sjá hversu mikið ég get gert við það sjálfur en annars redda mér nýju. Þetta geta ekki verið flóknar rafrásir í þetta gömlum bíl.
Það er rafmagnsplatan sem sér um að stjórna mælunum ásamt inspection dæminu. Þegar platan fer, þá fer eitthvað eða allt af þessu. Yfirleitt fer inspection dæmið fyrst.