Hæ, ég er í bölv. vandræðum með golf drusluna mína. Þetta er 97 árg ekinn bara128þús, 1600 mótor og sjálfskiptur. Fínasti bíll þegar hann vill fara í gang. Ég er búin að fara með hann á verksstæði og fá hann mældann og búið að pæla í þessu framm og til baka og hafði ég nú lítið annað upp úr því en 40þús kr. reikning :/ .... en þeir töldu að þetta væri sambandsleysi í vír/vírum sem liggja frá tölvunni inn á kveikju? Sko. Þetta lýsir sér þannig að hann er fínn í nokkra daga jafnvel 2 til 3 vikur, ríkur strax í gang. En! svo bara upp úr þuru bara startar hann og startar en fer ekki í gang - því það er ekki eða virðist ekki koma straumur inn á kveikjuna. Það er búið að skipta um kveikjuna, háspennuþráðinn og háspennukeflið - þannig að vandamálið er ekki þar... Já! eitt enn sem mér finnst soldið skrítið þegar ég svissa á hann áður enn að ég starta þá heyrist smá svona 'smell' hljóð einhversstaðar við stöngina á skiptingunni. Getur verið að það sé einhver rofi þar sem stendur á sér? því eins og þið vitið með ssj bíla þá starta þeir og starta en fara bara í gang ef þeir eru í Park. .... :S
Vonandi er einhver þarna úti með einhverja tillögu til að hjálpa mér, því ég vil forðast verksstæði, bara klikkun að rukka mann yfir 7000kr á tímann og svo vita þeir ekkert hvað veldur þessu :'(
Gleimdi að taka framm að þegar hann var mældur þá virtist bara studum koma straumur frá tölvunni inn á kveikjuna. Getur talvan bilað þannig, að hún virkar stundum og stundum ekki? :S
