Sælir, ég hef verið í vandræðum með rafmagnið í bílnum hjá mér, þetta lýsir sér þannig að þegar ég kveiki á bilnum þá flökta öll ljós í bílnum mælaborð, aðalljós, bara allur pakkinn. Bíllinn hefur líka tekið uppá því tvisvar að sprengja báðar framperur stuttu eftir að hefur veirð kveikt á honum (nokkrum sekúndum síðar). Það er eins og það komi einhverjir spennutoppar eftir að nýbúið er að kveikja á bílnum en þó ekki alltaf.
Ég fór með hann í bekk um daginn og var þá villa frá altanator en maðurinn á verkstæðinu gat ekki sagt mér meira en það.
Ef einhver hefur lent í þessu eða veit hvað það er sem er að plaga mig væri frábært að fá svar við þessu.
|