viðvörunarljós í mælaborði á suzuki hver gæti ástæðan verið?

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

viðvörunarljós í mælaborði á suzuki hver gæti ástæðan verið?

Postby batti » Tue 08. Feb 2011 23:53

Er með suzuki jimny og núna viknar rautt aðvörunarljós í mælaborðið (!) eins og kemur þegar bíllinn er í handbremsu.

Ljósið kemur þegar ég beygji ákveðið mikið til hægri. Ekkert ljós kemur þegar ég keyri beint en þegar smá hægri beygja er á stýrinu þá logar það stanslaust þar til búið er að rétta stýrið af.

Þetta byrjaði skyndilega að koma hjá mér í dag og finn ég engan mun á bílnum í akstri þrátt fyrir þetta.

Hvað gæti þetta mögulega verið?

með fyrirfram þökk
batti
Kassabílstjóri
 
Posts: 225
Joined: Sat 05. May 2007 16:27

Re: viðvörunarljós í mælaborði á suzuki hver gæti ástæðan ve

Postby demi » Wed 09. Feb 2011 00:07

Bremsuklossarnir eru að verða búnir hjá þér :thup:
demi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 580
Joined: Mon 05. Feb 2007 20:43

Re: viðvörunarljós í mælaborði á suzuki hver gæti ástæðan ve

Postby batti » Wed 09. Feb 2011 00:10

demi wrote:Bremsuklossarnir eru að verða búnir hjá þér :thup:


hmmm það ætti ekki að vera. Var einmitt verið að skipta um hjólalegur báðumegin að aftan og kíkt á klossana og diska í leiðinni. Allt í góðu þar. Einnig voru dælurnar að framan teknar og liðkaðar til. Diskar og klossar einnig í góðu standi þar. Gæti verið að þetta sé e-ð sambandleysi eftir þessar aðgerðir.

Ég kanna það allavega við fyrsta tækifæri.
batti
Kassabílstjóri
 
Posts: 225
Joined: Sat 05. May 2007 16:27

Re: viðvörunarljós í mælaborði á suzuki hver gæti ástæðan ve

Postby Axel Jóhann » Wed 09. Feb 2011 00:16

Prófaðu að halda handbremsunni niðri sjálfur þegar þú beygjir svona. Gæti verið sambandsleysi þar eða þá jafnvel vantað bremsuvökva í forðabúrið.
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image
User avatar
Axel Jóhann
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9115
Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Location: Breiðholt, Reykjavík

Re: viðvörunarljós í mælaborði á suzuki hver gæti ástæðan ve

Postby batti » Thu 10. Feb 2011 21:37

Axel Jóhann wrote:Prófaðu að halda handbremsunni niðri sjálfur þegar þú beygjir svona. Gæti verið sambandsleysi þar eða þá jafnvel vantað bremsuvökva í forðabúrið.


Bingó! Smá dass af bremsuvökva og ljósið farið. Forstjórajeppinn eins og nýr :D

Þakka kærlega fyrir hjálpina.
batti
Kassabílstjóri
 
Posts: 225
Joined: Sat 05. May 2007 16:27


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 46 guests