Hagstæðustu bílakaupin þegar flutt er inn til landsins

Hér skal spjalla um BMW.

Hagstæðustu bílakaupin þegar flutt er inn til landsins

Postby Jói » Fri 02. Apr 2004 20:36

Hvaða bíll haldið þið að sé hagstæðast að kaupa erlendis og flytja inn (ekki bara BMW)? Þá meina ég hvaða bíl gæti maður flutt inn til landsins og fengið hann vel undir "gangverði" svona bíls hér á landi?

Einhverjar sérstaka tegundir eða týpur. Eða einhverjir sérstakir verðflokkar eða bílaflokkar (2 dyra eða 4 dyra).

Hvað með bíla frá USA? Ætli þar séu margir bílar sem mundi borga sig að flytja inn?
Jói
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 342
Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Location: Reykjavík

Postby Thrullerinn » Fri 02. Apr 2004 22:29

Það má segja að það sé ekkert "sérlega" hagstætt að taka inn bíl mikð undir 2 m.kr.

Amerískir bílar er ódýrir frá USA, dollarinn lágur...
Sportbílarnir eru ódýrir miðað við járninnihald ;)
Ódýrustu hestöflin eru í amerísku bílunum.

Þýskir Z3 M er rosa græja á góðu verði... heil 320 hö.
Síðan eru allir bensarnir... og auðvitað BMW.

En satt að segja eru "heitustu" innflutningsbílarnir oft mjög ódýrir hérna heima... oft heillar það meira því það er töluverð vinna í innflutningsdótaríinu, koma bílnum í skip, pappírar, tryggingar, fragt, skráning (og ryðvörn). [/b]
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby Jss » Fri 02. Apr 2004 22:35

Talandi um Z3 M - hér er einn:

Z3 M coupe

Image

Á 18.900 evrur sem leggst út á ca. 3,2 milljónir skv. innflutningsreiknivél BMWKrafts. ;)
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby freysi » Sat 03. Apr 2004 01:38

hah! Skemmtilegar mottur! 8) :wink:
freysi
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 495
Joined: Mon 10. Nov 2003 01:11
Location: Honolulu, Hawaii

Postby Thrullerinn » Sat 03. Apr 2004 13:44

freysi wrote:hah! Skemmtilegar mottur! 8) :wink:


Snilld !! svona töfrateppastíll yfir þeim :D
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Postby Jss » Sat 03. Apr 2004 13:48

Motturnar yrðu það fyrsta til að hverfa ef maður verslaði þennan, og síðan yrði blái liturinn í stýrinu gerður útlægur. :?

Það er reyndar ekki inní spilinu að maður versli Z3, allavega ekki á næstunni. :?
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby Jss » Sat 03. Apr 2004 13:52

Enda sést að maður getur fengið E39 M5 á lægra verði hingað kominn.

E39 M5

Image

19.899 evrur og skatturinn til baka sem útleggst hingað kominn á ca. 2,9-3,0 milljónir skv. innflutningsreiknivélinni. :shock:
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby hlynurst » Sat 03. Apr 2004 14:19

M coupe er samt svo hardcore... ég tæki svoleiðis bíl fram fyrir M5. :twisted:
hlynurst
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2807
Joined: Tue 03. Sep 2002 20:21
Location: Reykjavík

Postby E 220T » Sat 03. Apr 2004 19:00

Benz W124, E420, 280hö, 400NM. Þetta er meiriháttar bíll. Talsvert er til af þessum bílum hér heima, EN..., menn eru að biðja um mjög hátt verð fyrir þá, jafnvel illa búna og án bókar.

Ég var að flytja þennan inn Talsvert undir því sem menn eru að biðja um hér heima fyrir eldri og verr útbúna bíla í gegnum Smára í Hamborg.

http://www.cardomain.com/memberpage/535892

Árgerð 1995, með öllu, 110% þjónustubók, ekinn 155þkm.

Kostaði mig svipað og ódýr nýr Yaris 8). Hefði ég kannski átt að kaupa Yaris :?:

Ég keyri um þessa dagana með þennan svip á andilitinu: :D :D :D
E 220T
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 33
Joined: Wed 18. Feb 2004 22:33

Postby Jss » Sat 03. Apr 2004 19:28

Til hamingju með þetta, mun skemmtilegri og þarmeð sniðugari kaup en Yaris. ;) :D
Jóhann
E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR
E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR
User avatar
Jss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4811
Joined: Wed 29. Jan 2003 22:16
Location: Hafnarfjörður

Postby bebecar » Sat 03. Apr 2004 21:36

Þegar stórt er spurt þá færðu sko flóð af svörum.

Ég er á því að mesta bargainið í bílum frá þýskalandi sé Porsche 944 - þessir bílar eru ódýrir í viðhaldi, galvaniseraðir, öflugir og frábær aksturstæki og kosta skít og kanil úti í þýskalandi.

Frá USA myndi ég helst stóla á Camaro, Mustang eða eitthvað í þeim dúr, nema þú viljir pick up :wink:
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101

Postby Jói » Sat 03. Apr 2004 22:04

bebecar wrote:Þegar stórt er spurt þá færðu sko flóð af svörum.

Ég er á því að mesta bargainið í bílum frá þýskalandi sé Porsche 944 - þessir bílar eru ódýrir í viðhaldi, galvaniseraðir, öflugir og frábær aksturstæki og kosta skít og kanil úti í þýskalandi.

Frá USA myndi ég helst stóla á Camaro, Mustang eða eitthvað í þeim dúr, nema þú viljir pick up :wink:

JÁ! Porsche 944 er fáranlega ódýr í Þýskalandi. Sennilega hægt að fá ágætan 944 með 2.5 eða 2.7 (165 hö) á 2000-2500 evrur. Það er 450 þ - 500 þ án þóknunar kominn heim :shock: :shock:

Ég ætla að prófa þessa bíla sem fyrst til að sjá hvort ég verð hrifinn. :twisted: Ég væri alveg til í að eiga Porsche. :wink: 944 hefur mér alltaf fundist skemmtilega 80s og örugglega skemmtilegt að keyra þessa bíla. Hvað ætli þér kosti hérna heima? Varla undir 500-600 þ?

Bebe: hefur þú eða einhver hérna prófað þessa bíla????

Síðan væri hægt að gera margt vitlausara en að kaupa sér einhvern brjálaðan pickup.

Fyrir þá sem fylgjast með ensku knattspyrnunni þá má geta þess að Alan Smith á einhvern svakalegan amerískan pickup. Hvern langar ekki til að vera eins og Alan Smith?? :P
Jói
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 342
Joined: Fri 07. Feb 2003 17:28
Location: Reykjavík

Postby fart » Sun 04. Apr 2004 08:04

Já.. Alan Smith.. hann er mín hetja.. pickup og aflitaður hanakambur.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Postby bebecar » Sun 04. Apr 2004 09:30

Jói wrote:
bebecar wrote:Þegar stórt er spurt þá færðu sko flóð af svörum.

Ég er á því að mesta bargainið í bílum frá þýskalandi sé Porsche 944 - þessir bílar eru ódýrir í viðhaldi, galvaniseraðir, öflugir og frábær aksturstæki og kosta skít og kanil úti í þýskalandi.

Frá USA myndi ég helst stóla á Camaro, Mustang eða eitthvað í þeim dúr, nema þú viljir pick up :wink:

JÁ! Porsche 944 er fáranlega ódýr í Þýskalandi. Sennilega hægt að fá ágætan 944 með 2.5 eða 2.7 (165 hö) á 2000-2500 evrur. Það er 450 þ - 500 þ án þóknunar kominn heim :shock: :shock:

Ég ætla að prófa þessa bíla sem fyrst til að sjá hvort ég verð hrifinn. :twisted: Ég væri alveg til í að eiga Porsche. :wink: 944 hefur mér alltaf fundist skemmtilega 80s og örugglega skemmtilegt að keyra þessa bíla. Hvað ætli þér kosti hérna heima? Varla undir 500-600 þ?

Bebe: hefur þú eða einhver hérna prófað þessa bíla????




Já, ég hef ekið bæði venjulegum og S gerðinni af 944. Mig minnir að S bíllinn sé 220 hestöfl og það er með alsprækustu bílum sem ég hef keyrt. Sá bíll var algjör haugur en maður steingleymdi því þegar maður var að keyra hann því hann var óaðfinnanlegur í akstri.

165 hestafla bílarnir eru samt bestu kaupin, þeir eru hörku sprækur og sennilega eru þetta BESTU akstursbílar sem ég hef keyrt, það er engin bíll sem þú kemst eins nálægt takmörkunum á - og það er bara vegna þess að þú veist nákvæmlega hvað er óhætt að bjóða honum uppá.

Blessaður tékkaðu á þessu sem fyrst...

Svo er náttúrulega verulegur kostur hér heima á svona góðum bíl að hann sé galvaniseraður.
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road
User avatar
bebecar
Barnakerrubílstjóri
 
Posts: 10882
Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Location: Reykjavík 101


Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 10 guests