Það styttist í að ég geti farið að leggja niður tölur í sambandi við hvernig túrbó greinin á að vera í þessum bíl.
Þ.e runnera lengd, runnera sverleiki. Þetta og staðsetning á túrbínunni gerir þetta nokkuð tricky. Enn
þar sem að ég er að reyna hámarka getu kerfisins.
Ég er alveg að drukkna í skóla akkúrat núna. Þarf að klára mengunartest verkefni í dag sem skilast næsta föstudag svo ég geti byrjað á og klárað efnafræði verkefni sem þarf að skilast fyrir föstudag. Svo byrjar næsta runa af verkefnum eftir það.
rannsókn og prufun á N54 þrískiptri soggrein í tölvu umhverfi, Þetta mun BARA taka langann tíma
uppsetning á rafmagns/bensín bíl og mengunar og eyðslu prófun í tölvu umhverfi,
hönnun á go-kart grind til framleiðslu.
Byrja lokaverkefnið sem er 2013 F1 1.6 turbo vél, þetta verður gert í tölvu umhverfi líka, ásar, ventlar, port, runnerar allann pakkann þarf ég að setja upp frá A-Ö og svo aftur til A. Svo testa bensín eyðslu vélarinnar í F1 bíl í tölvu umhverfi.
Þessi M50 er #1 af þeim projectum sem ég hef utan skóla. Enda það sem mér hlakkar mest af öllu til að klára og sjá árangurinn af ekki það að S50B32 turbo sé ekki spennandi líka þá er þetta bara svo góður séns á því að nota það sem maður er að læra beint í eitthvað verkefni.
Þegar þetta verkefni er lokið þá held ég að allir á kraftinum ættu að hafa lært eitthvað um að túrbóvæða vélar og hvað er gott og hvað er ekki þegar kemur að ásum, ventlatíma, túrbógreinum og allt það.




