Jói wrote:
Þessi bíll er vissulega flottur. En þetta er auðvitað hrísing, það segir sig sjálft. Skiptir engu máli þótt þetta sé á öðrum staðli eða eitthvað þannig. Hvort sem það er það ekki, þá er það bara spurning um smekk hvers og eins. Með algerlega hlutlausu mati, þá er þetta hrís, alveg eins og þegar við hlæjum að hrísuðum japönskum bílum sem við fílum ekki.
Með því að gera þessar breytingar ertu að láta bílinn líta út eins og eitthvað sem hann er ekki. Það er það nákvæmlega sama og þegar Honda eigandinn setur S2000 og VTEC merkið á eldgamla Accordinn sinn. Þetta dæmi er í raun nákvæmlega eins. Þó þú munir reyna að jafna út leikinn með því að "hrísa" vélina þá finnst mér þetta vera á mjög gráu svæði.
Þetta er hrís, þú veist það bebecar. Það á eftir að naga þig þegar þú verður búinn að "hrísa" bílinn svona. Ég held það að minnsta kosti. Þótt þetta sé langt í frá stingandi hrís og alls ekki mikið og mundi sleppa hjá lang flestum, þá held ég að ÞÚ mundir naga þig í handabakið ef þú gerir þetta. Er ekki bara spurning um að halda bílnum í toppstandi og kannski betrumbæta hann aðeins.
Ég get ekki samþykkt að Alpina replicur séu hrís, sérstaklega ekki ef það er búið að uppfæra vélina með Alpina pörtum.
Síðan er það spurning hvort Bebe ætli að láta B6 merki aftaná..... ég myndi persónulega ekki gera það