Dundaði svolítið í bílnum í dag það var þetta fína veður 15 stiga hiti, það reyndar snjóaði síðasta fimtudag. Það snjóar nánast aldrei hérna enda var frí í skólanum útaf snjó haha
Ég skellti “hillunni” aftur í var búin að taka hana úr til að bólstra hana með Suede efni.
Hérna er fyrir og eftir, málið var að það var svo ótrúlega upplitað efnið orðið half fjólublátt haha
Fyrir

Eftir

Svo tók ég þessa lista og sprautaði, svo miklu betra núna. Voru orðnir svo ljótir
Fyrir

Eftir

Herna er hægt að sja hvernig það var orðið upplitað


Svo for eg að taka nokkrar myndir, en það var eiginlega orðið of dimmt
