Persónuleg met í ræktinni...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: Persónuleg met í ræktinni...

Postby Einarsss » Thu 27. Jan 2011 12:12

Binnz wrote:Ef fæðubótarefni myndu ekki hjálpa til, þá væri aldrei selt svona mikið af þessu.



Fullt af þessum efnum sem gera ekki skít og það fæðist nýr hálfviti á hverri mínútu.
Fullt af CF sem rúllar
User avatar
Einarsss
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12513
Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Location: Bitch viltu dick?

Re: Persónuleg met í ræktinni...

Postby SteiniDJ » Thu 27. Jan 2011 14:11

Er að fara á morgun með félaga mínum sem er mikið í lyftingum og öðru slíku að velja eitthvað fínt prótein sem hægt er að drekka á milli mála. Ætla ekki dýpra en það.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Persónuleg met í ræktinni...

Postby Aron M5 » Thu 27. Jan 2011 14:16

BMW 525D E61 07 Facelift
Aron M5
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2389
Joined: Thu 07. Dec 2006 16:53
Location: keflavik

Re: Persónuleg met í ræktinni...

Postby Jón Ragnar » Thu 27. Jan 2011 14:22

Aron M5 wrote:http://www.perform.is/product_info.php?products_id=66&osCsid=2omamu996f025njjm18htq55c7

Mjög gott protein..



ommnomm

mega gott :thup:

Tesla Model Y
User avatar
Jón Ragnar
Formúlubílstjóri
 
Posts: 11978
Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Location: ::1

Re: Persónuleg met í ræktinni...

Postby Jónas » Thu 27. Jan 2011 16:30

Var alltaf hrifinn af ON 100% Whey þangað til ég flutti til UK.

Hérna er hægt að fá 5kg af Whey frá Myprotein fyrir 39 pund, og shit tits ég hef aldrei smakkað jafn gott prótein, súkkulaðisjeikarnir hjá ísbúð Vesturbæjar fölna í samanburði :lol:
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Re: Persónuleg met í ræktinni...

Postby Svezel » Thu 27. Jan 2011 16:42

Jónas wrote:Var alltaf hrifinn af ON 100% Whey þangað til ég flutti til UK.

Hérna er hægt að fá 5kg af Whey frá Myprotein fyrir 39 pund, og shit tits ég hef aldrei smakkað jafn gott prótein, súkkulaðisjeikarnir hjá ísbúð Vesturbæjar fölna í samanburði :lol:


Enda eru svona próteinsheikar sneisafullir af sykri og ógeði.

Það er algengur misskilningur að próteinsheikar séu einhver hollusta, þetta er bara örlítið skárri skyndibiti heldur en eitthvað djúpsteikt gums
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Re: Persónuleg met í ræktinni...

Postby Jónas » Thu 27. Jan 2011 16:56

Svezel wrote:
Jónas wrote:Var alltaf hrifinn af ON 100% Whey þangað til ég flutti til UK.

Hérna er hægt að fá 5kg af Whey frá Myprotein fyrir 39 pund, og shit tits ég hef aldrei smakkað jafn gott prótein, súkkulaðisjeikarnir hjá ísbúð Vesturbæjar fölna í samanburði :lol:


Enda eru svona próteinsheikar sneisafullir af sykri og ógeði.

Það er algengur misskilningur að próteinsheikar séu einhver hollusta, þetta er bara örlítið skárri skyndibiti heldur en eitthvað djúpsteikt gums


Per 30g:
Energy: 111.0Kcal
Energy: 472.0KJ
Protein (dry basis): 27.9g
Protein (as-is): 27.7g
Fat: 0.3g
Carbohydrates: 0.2g
Calcium: 120.0mg
Cholesterol: 0.6mg


Ert þú að tala um einhverja aðra próteinsheika?
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Re: Persónuleg met í ræktinni...

Postby íbbi_ » Thu 27. Jan 2011 17:54

fyndið samt.. ef maður talar við einhevrn sem er í ræktini þá er það bara árskammtur af próteini á milli mála og ein skeið af þessu til að beygja til hægri og önnur af einhverju öðru til að labba út í bíl, svo brenslutöflur líka og power bar á eftir..

svo talar maður við næringafræðing (sem er ekki einkaþjálfari) og hann gúdderar ekkert af þessu..

annars þarf maður að fara koma sér af stað..
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll
User avatar
íbbi_
Formúlubílstjóri
 
Posts: 12484
Joined: Tue 27. May 2003 07:47

Re: Persónuleg met í ræktinni...

Postby DiddiTa » Thu 27. Jan 2011 19:34

Ég var frekar duglegur að hrúga einhverju svona drasli í mig, prufaði svo að sleppa því núna og finn eiginlega engann mun á mér á æfingum eða hvað ég er fljótur að stækka. Eins og allt þetta pre-workout dót ég hef voða litla trú á því núna. Eina sem ég tek í dag er omega 3 og það gengur alveg jafn vel, myndi reyndar alveg fá mér gainer ef ég væri að bulka
DiddiTa
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 429
Joined: Thu 30. Dec 2004 14:16

Re: Persónuleg met í ræktinni...

Postby Aron M5 » Thu 27. Jan 2011 20:20

Greinilega eitthvað öðruvísi með ykkur en fæðubótarefni hafa gert góða hluti fyrir mig :wink:

Þýðir heldur ekkert að vera eitthvað neikvæður á hlutina sem þú ert að prófa og bara yfir höfuð í ræktini
BMW 525D E61 07 Facelift
Aron M5
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2389
Joined: Thu 07. Dec 2006 16:53
Location: keflavik

Re: Persónuleg met í ræktinni...

Postby Svezel » Thu 27. Jan 2011 20:33

Ég át slatta af þessu dóti á sínum tíma og hélt að þetta væri alveg málið en svo lenti ég á alveg frábærum einkaþjálfara og næringafræðing sem fræddi mig um þetta. Þá hætti ég að borða svona drasl og fór bara að borða rétt með alveg frábærum árangri, alveg tútnaði út með réttum æfingum og réttu fæði.

Ef þetta virkar fyrir ykkur og þið eruð sáttir við þetta þá er það bara besta mál fyrir ykkur, en einhverjir sem eru að byrja í átaki og ætla að koma sér í form þurfa ekki að eyða tugum þúsunda í fæðubótaefni til að ná arangri. Það er líka alveg spurning hversu hollt þetta dót er til lengri tíma...
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Re: Persónuleg met í ræktinni...

Postby BirkirB » Thu 27. Jan 2011 20:40

Kona sem kennir mér heilsufræði í skólanum segir að svona duftdót virki ekki neitt...og hún sé sko búin að tala við næringarfræðinga og lyfjafræðinga og lækna yariyari og þeir segi allir að þetta virki ekki....
Þessi kona er hjúkrunafræðingur (kennari á sjúrkaliðabraut í 13 ár og hjúkrunarkona í einhver ár) og hún hafði séð mikla aukningu hjá ungu fólki með nýrna og lifrarskemmdir útaf svona dóti þegar hún vann á sjúkrahúsi...

Hún tók kreatín sem dæmi...að þegar maður borðar kreatín getur líkaminn ekki brotið þetta duft niður svo hægt sé að nota það...eins og með insúlín...sykursjúkur maður getur ekki borðað insúlín, hann þarf að sprauta sig með því svo það virki því það er ekki hægt að pakka insúlíni í þannig form að meltingin geti brotið það niður í nothæft form...

Einnig talaði hún við lyfjaeftirlitsmenn sem höfðu sagt að ef þessi efni virkuðu þá væru þau bönnuð því þau væru vöðvauppbyggjandi.

Ég eiginlega trúi henni frekar en þeim sem selja og framleiða þessi efni...Eitthvað af þessu virkar samt örugglega...
Og þetta hljómar eins og svakalegur áróður gegn þessu...en ég tek mark á staðreyndum...
E39M5
I4M50
User avatar
BirkirB
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1838
Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Location: Rkv

Re: Persónuleg met í ræktinni...

Postby burger » Thu 27. Jan 2011 21:07

BirkirB wrote:Kona sem kennir mér heilsufræði í skólanum segir að svona duftdót virki ekki neitt...og hún sé sko búin að tala við næringarfræðinga og lyfjafræðinga og lækna yariyari og þeir segi allir að þetta virki ekki....
Þessi kona er hjúkrunafræðingur (kennari á sjúrkaliðabraut í 13 ár og hjúkrunarkona í einhver ár) og hún hafði séð mikla aukningu hjá ungu fólki með nýrna og lifrarskemmdir útaf svona dóti þegar hún vann á sjúkrahúsi...

Hún tók kreatín sem dæmi...að þegar maður borðar kreatín getur líkaminn ekki brotið þetta duft niður svo hægt sé að nota það...eins og með insúlín...sykursjúkur maður getur ekki borðað insúlín, hann þarf að sprauta sig með því svo það virki því það er ekki hægt að pakka insúlíni í þannig form að meltingin geti brotið það niður í nothæft form...

Einnig talaði hún við lyfjaeftirlitsmenn sem höfðu sagt að ef þessi efni virkuðu þá væru þau bönnuð því þau væru vöðvauppbyggjandi.

Ég eiginlega trúi henni frekar en þeim sem selja og framleiða þessi efni...Eitthvað af þessu virkar samt örugglega...
Og þetta hljómar eins og svakalegur áróður gegn þessu...en ég tek mark á staðreyndum...



allt er gott í hófi :thup:

sumir sem dæla bara endalaust í sig af td kreatíni og taka aldrei pásu á milli dúnka og eru kannski að taka meira en ráðlagðann skammt þá safnast þetta auðvitað upp í líkamanum ef það er aldrei stoppað og það skemmir nýrun og lifrina
VW Golf VR6 - í Notkun!
Subaru leone 1800 1986 - Seldur
Mazda 323f -seldur
Volvo 240&740 - Seldir
maxel wrote:Nenniru að rífa enter takkan úr lyklaborðinu þínu.
burger
Getawaybílstjóri
 
Posts: 990
Joined: Tue 22. Jan 2008 21:09

Re: Persónuleg met í ræktinni...

Postby SteiniDJ » Thu 27. Jan 2011 21:10

BirkirB wrote:Kona sem kennir mér heilsufræði í skólanum segir að svona duftdót virki ekki neitt...og hún sé sko búin að tala við næringarfræðinga og lyfjafræðinga og lækna yariyari og þeir segi allir að þetta virki ekki....
Þessi kona er hjúkrunafræðingur (kennari á sjúrkaliðabraut í 13 ár og hjúkrunarkona í einhver ár) og hún hafði séð mikla aukningu hjá ungu fólki með nýrna og lifrarskemmdir útaf svona dóti þegar hún vann á sjúkrahúsi...

Hún tók kreatín sem dæmi...að þegar maður borðar kreatín getur líkaminn ekki brotið þetta duft niður svo hægt sé að nota það...eins og með insúlín...sykursjúkur maður getur ekki borðað insúlín, hann þarf að sprauta sig með því svo það virki því það er ekki hægt að pakka insúlíni í þannig form að meltingin geti brotið það niður í nothæft form...

Einnig talaði hún við lyfjaeftirlitsmenn sem höfðu sagt að ef þessi efni virkuðu þá væru þau bönnuð því þau væru vöðvauppbyggjandi.

Ég eiginlega trúi henni frekar en þeim sem selja og framleiða þessi efni...Eitthvað af þessu virkar samt örugglega...
Og þetta hljómar eins og svakalegur áróður gegn þessu...en ég tek mark á staðreyndum...


Pabbi (læknir) er algjörlega á þessu. Var á fyrirlestri í USA í fyrra þar sem þetta var tekið fyrir. Læknar út um allan heim eru mjög ósáttir með það að þegar nýtt lyf kemur á markað þarf það að fara í gegnum gríðalegar rannsóknir áður en mannfólk fær að koma nálægt því. Það þarf að gefa upp nákvæmar innihaldslýsingar og framleiðandinn verður að taka ábyrgð þeim ótilkynnta skaða sem hefðbundin notkun á lyfinu kann að valda. Öll þessi fæðubótaefni ganga ekki í gegnum neitt af þessu ferli.
Image
User avatar
SteiniDJ
Formúlubílstjóri
 
Posts: 9113
Joined: Tue 20. Mar 2007 17:07
Location: Hafnarfjörður

Re: Persónuleg met í ræktinni...

Postby Aron M5 » Thu 27. Jan 2011 21:16

Örugglega langsniðugast að sprauta sig bara..........
BMW 525D E61 07 Facelift
Aron M5
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2389
Joined: Thu 07. Dec 2006 16:53
Location: keflavik

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 30 guests