Ekkert búið að breytast.
Maður lærir bara að hugsa fyrir utan kassann.
Ef við gefum okkur að 650nm sé maxið sem M50 mun þola til lengri tíma án þess að beygla stangir eða brjóta hring-lönd þá má hafa 650nm við alla snúninga (svona næstum því) og í staðinn fyrir að hugsa inní kassanum þá vil ég búa til TOG takmarkaða vél, enn hún verður einnig hestafla takmörkuð.
Tog takmörkun er útaf stöngum og stimplum , hestafla lega er útaf viðloðandi hita framleiðslu sem stimplarnar geta ekki losað sig við og þeir bráðna svo.
Hlutir sem ég hef lært :
Boost er bara tala, það er alltof margir aðrir hlutir sem segja til um loftflæði heldur enn boostið.
Ef maður hefur tök á því að stýra boosti eftir hendugleika eins og eftir snúning þá getur maður stýrt tog kúrvunni.
Og ef við vitum að 500hö næst við 1.5bar þá er alveg eins hægt að fá það við 2bör eða hvaða boost tölu sem er.
Með því að færa nýtni vélarinnar á lægri snúning þá býr hún til meiri orku til að knýja túrbínuna af stað. Þegar túrbínan er komin af stað þá er alltaf næg orka til að halda henni á ferð. Og með stillanlegur boost controlli þá þegar nýtni vélarinnar fer niður þá lokar maður bara betur á wastegatið og hækka boostið svo að X orka fari í túrbínuna.
Það er ekkert víst að það sé hægt að ná svona svaka low end. Enn ef rétt er að farið þá er ég viss um að það er hægt að gera þetta eins gott og hægt er með það sem takmark að 500hö sé limitið. Því að það er ekkert mál að pusha M50B25 yfir 500hö og þangað til að hún eyðileggur sjálfann sig.
Þannig að núna er markið hreinlega að smíða 2.5 ETA M50 vél sem er með eins gott low end loftflæði og hægt er til að fá
boost sem fyrst inn, sem og minnsta laggið, og nota svo boost til að klára að ná 500hö takmarkinu.








