by íbbi_ » Wed 26. Jan 2011 17:25
meina skúli ef þú varst svona forvitinn af hverju sendiru honum ekki PM?
maður hefur margoft lent í þessu, maður rambar á einhvern sem einhverja ástæðna vegna er til í að selja bíl langt undir verði og maður kaupir hann og auglýsir á eðlilegu verði og vonast eftir að lenda þessu einhverstaðar á milli,
þá fær maður einhverja sjálfskipaða verðeftirlitsmenn sem fara tuða í þræðinum að þetta sé ekki það verð sem bíllinn fór á síðast. sem hefur ekkert með bílin sjálfan að gera, svo er nánast undantekningarlaust engin áhugi fyrir bílnum í gangi frá þessum sömu aðilum,
í vetur var seldur hérna vel keyrandi og reyndar bara ansi heillegur E38 bíll á rúman 100þús kall,
árni sezar var ekki lengi að grípa hann og kom nánast beint til mín og setti hann uppí bíl hjá mér á allavega tvöfallt það sem hann borgaði, samt ennþá langt undir eðlilegu verði á svona bíl, var árni þá að svindla á mér? bara af því að einhver nánast gaf honum bílin?
ég auglýsti svo bílin á rúman 300þús og ennþá má færa rök fyrir því að bíllinn hafi verið töluvert undir verði og ég held að ég hafi fengið um eða yfir 20manns heimtil mín
og þar af var stór hluti þeirra til í að raunverulega taka hann, og sá fyrsti sem mætti með peningana tók hann, hann fór btw sama dag og ég auglýsti hann
samt var rigndi yfir mig á sama tíma póstunum og comment í söluþræðina um hvað árni hafi keypt bílin á og að ég fengi aldrei það sem ég setti á bílinn útaf því, og það gékk svo langt að eitt fíflið var að senda þeim sem voru að spurja um bílin PM með link á auglýsinguna þar sem hann fór á 120k
samt er það nú þannig að það var slegist um bílin og ég fæ ennþá reglulega PM og hringingar um hvort hann sé farinn, tæpu ári seinna, hvað segir það manni? ég sé meirasegja kaupandan oft á rúntinum á honum og get ekki betur séð en að hann sé hæst ánægður með bílin, þrátt fyrir að ég hafi meirasegja sagt honum hvað bíllinn fór á 2-3 vikum áður,
ég gerðist oft sekur um þetta sjálfur hérna áður.. ekki með að senda PM engu síður en að hakka í mig e-h auglýsingar því ég var svo kúl gaur sko að vita hvað bíllinn fór á einhverntíman áður.. og bara varð að láta alla vita af því, og eyðileggja fyrir sölu á bíl sem kom mér ekkert við..
auðvitað er í lagi að spurja hvað hafi verið gert og ef eitthvað hafi verið gert og allt það, en þetta syndrome á spjöllunum hérna er orðið dáldið leiðinlegt,
afsakaðu tuðið í þræðinum auðun, hann var orðinn ónýtur hvort sem er
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll