Ég er nú búinn að renna í gegnum commentið frá porno-king allavega fjórum sinnum og skil það ekki ennþá
En ef hann heldur að ég sé eitthvað sár yfir því að honum finnist stýrið ljótt þá er einhver að keyra á móti umferð, mér er bara ofboðslega sama enda ekki keypt til að ganga í augun á einhverjum

heldur til að færa hjólið sjálft aðeins nær bringunni, það munar alveg 7cm ef ég man rétt sem gerir stýrið líka ólögleg á götubíl skv. reglum hér. Reglurnar hér segja að stýrið verði að vera á upprunalegum stað til að byrja með, og svo eru aðrar reglur eins og t.d. að það má ekki vera of lítið því þá skyggir það á mælana.. Það hefði verið praktískara að taka eitthvað annað stýri, en í stað þess er ég með tvö. Þetta fyrir sumarið (og brautina) og svo annað Momo stýri sem er street legal, og það er frekar klassískt MOMO Competition sem ég set í fyrir árlegu skoðunina og nota einnig á veturna.

BTW þá nota ég ekki miðjuhringinn, finnst það betra þannig.
Það er hinsvegar alveg tvennt ólíkt að keyra með þessi tvö. Race (rice) stýrið er mjórra og aðeins stærra og gefur mun meira feel fyrir veginum enda harðara. Þetta hér er þykkara og úr leðri, og mér finnst einhvernvegin eins og bíllinn virki þyngri með því, kanski að því að maður hefur minna "feel".
Svona þannig að umræðan snúist ekki upp í enn annan bull þráðinn um mig/Þórð/Sveinbjörn þá sýnist mér að sá sem breytti þessum hafi stefnt að ákveðnu "GT" keppnis þema í götubúningi. Felgurnar, lippið

(splitterinn) að framan, defuserinn að aftan, monster spoilerinn og fleira er allt að vísa í ákvðna átt eða að GT1-2 bílum, og maður finnur aldrei loftpúðastýri í þeim, yfirleitt eru þetta frekar plain stýri sbr. það sem hann er að nota. Þegar menn koma svo í LM og AmerískaLM eru komin flóknari stýri.

Vængir og splitterar (spoilerar og lip þannig að allir séu með

) eru allsráðandi.
Ég er að fíla þennan M3. Hann er vel extreeme, án þess að mér verði flökurt. Ólíkt sumum af þessu widebody verkefnum sem ég hef séð.
