ppp wrote:
Stevens wrote:
Quote:
Það skiptir engu um fjöldann hvort þetta er vinsældarkeppni eða ekki að mínu mati. Setja bara alvöru hæfniskröfur fyrir starfið, að það geti ekki hvaða gúrka eða celeb boðið sig fram.
Er það ekki eimmitt það sem þarf. Þ.e. fólk sem að hefur menntun og reynslu til að sinna þeim störfum sem að ráðherrar sinna..?
Hvaða stórfyrirtæki haldið þið að myndi ráða dýralækni eða jarðfræðing sem fjármálastjóra..?
Ég er ekki að sjá að uber-menntun hafi bjargað blessuðum bönkunum. Það hefði ábyggilega verið hægt að finna einhvern oldschool, samviskusaman dýralækni sem hefði staðið sig betur sem CFO en þessir ungu, gráðugu MBA hotshots sem runnu svo illa á rassgatið allir saman.
Nei það er svosem alveg rétt..
En maður myndi halda að með menntun ætti að koma hæfni, og að maður sem að er lærður hagfræðingur ætti að vera betur að sér í fjármálastjórnun en dýralæknir eða jarðfræðingur. En það er rétt sem að þið segið, að það virðist ekki vera raunin á Íslandi.
Svo getur líka verið að allir þessir einstaklingar hafi haft gáfur til að sinna þeim störfum sem að þeir voru ráðnir í, sama hvort að það voru bankamenn eða stjórnmálamenn, en þeir látið eigin hagsmuni og óstjórnlega græðgi, í hvort sem er völd eða peninga ráða ferðinni..