Roadtrip í Evrópu

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Roadtrip í Evrópu

Postby Maddi.. » Sun 16. Jan 2011 23:13

Sælir.
Það er verið að gæla við að fara í slíka ferð í sumar.
Það yrði farið með bíl í norrænu.
Veit að einhverjir hérna hljóta að hafa farið í þannig...
Væri gott að fá að heyra frá einhverjum hvað grófur kostnaður var, og þá fyrir hversu marga daga það var, hversu sunnarlega var ferðast, hversu margir kílómetrar keyrðir, hversu mörg lönd heimsótt. Allt sem á við.
Væri flott að heyra einhverjar ferðasögur, ásamt hvað skal varast og ýmsum ábendingum.

Er svona að spá hvort maður á að leggja í þetta, þetta koma náttúrulega til með að vera rosalegar summur.
User avatar
Maddi..
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1422
Joined: Fri 06. Feb 2009 20:21
Location: Kársnesið

Re: Roadtrip í Evrópu

Postby Maddi.. » Sun 16. Jan 2011 23:17

Ætlunin var þá líka að reyna að fara þetta á bíl sem væri hægt að sofa í... einhverjum litlum van eða slíku, það myndi líklega spara manni gistingu og þannig vesen.
User avatar
Maddi..
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1422
Joined: Fri 06. Feb 2009 20:21
Location: Kársnesið

Re: Roadtrip í Evrópu

Postby bimmer » Sun 16. Jan 2011 23:19

Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Roadtrip í Evrópu

Postby Viggóhelgi » Sun 16. Jan 2011 23:26

ég hef farið 2x.. og ferðast um alla evrópu nema þau lönd þar sem eru yfirgnæfandi líkur á að þú tapir bílnum þínum (pólland og litháen)

ég komst að því að það var alltaf mun ódýrara að legja bara bílinn. og svo er plúsinn að þú getur skilað honum nánast hvar sem er fyrir smá aukalegan kostnað.

ég hef tekið golf station 2L diesel (mjög hentugur)

ég hef alltaf byrjað á því að fljúga til þýskalands og keyrt þaðan - stoppað í öllum löndunum á leiðinni niðreftir og tekið alla þessa helstu áhugaverðu staði

Þýskaland fram og til baka (nýta sér hvað það er ódýrt að keyra þar (engir tollar) Milano - paris - nice- monaco - feneyjar - salzburg - alpirnar - Benedorm - sevilla - barcelona - baaara svona sem dæmi

allt æðislegir hlutir. SVOO FÁRÁNLEGA gaman. ég tók þýskaland og alpirnar fram yfir allt hitt. - tók mánuð í þetta og eyddi alltaf mestum tíma í þýskalandi og spáni - þýskaland upp á menningu - góða vegi, bjór og ég veit ekki hvað og hvað en spánn fyrir djammið og hitan! :)

p.s. sá ekki fyrr en eftir á að þú ætlar á van til þess að sofa í ... þar liggur mikill sparnaður... :)
BMW e60 520d - 2006
Honda Shadow Spirit - 2012
User avatar
Viggóhelgi
Getawaybílstjóri
 
Posts: 802
Joined: Thu 08. Sep 2005 17:22

Re: Roadtrip í Evrópu

Postby Bjarkih » Mon 17. Jan 2011 00:13

Gætir leytað þér upplýsinga hjá húsbílaliðinu http://www.husbilar.is/ aðallega upp á öryggispælingar og svoleiðis, hvar er óhætt parkera yfir nótt o.þ.h. og hvort þú fáir afsláttarkort á húsbílastæði/tjaldsvæði ef þú ert meðlimur í húsbílafélagi.
Bjarki Hilmarsson
--
E34 520iA '90 --seldur--
E34 540 6 spd manual Touring '96 -- seldur :cry: --
User avatar
Bjarkih
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3154
Joined: Wed 06. Aug 2003 00:57
Location: Akureyri 603


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 90 guests