Reif stóla, teppi og afturbekk úr og kláraði að ganga frá öllum vírum í gólfinu (Græjusnúrum og rafgeymakapalnum aftur í skott) og setti það í tilþess gerðar raufar bak við teppið...
Tók svo sleðana undan Pre-Facelift sportstólunum og pússaði upp og málaði, og fékk lánaða djúphreinsivél og djúphreinsaði teppið bæði undir og ofan á.
Svo mál málanna, botninn.
Botninn var bara merkilega heill, lookaði eins og nýr fyrir utan stóru vatnstappagötin undir fótum farþega aftur í, hreinsaði ég allt yfirborðsryð (sem var bara í kringum götin.) og lét smíða 1mm plötur í götin, límkíttaði þær í með Wurth-kítti og grunnaði og málaði plöturnar báðum megin með zinkgrunni og Diamantschwarz-Metallic. Tektíll fer svo undir botninn.
Svo er ég búinn að djúphreinsa stólana og er að klára að djúphreinsa alla innréttninguna (einnig í skottinu).
Skottið tók ég allt í gegn, þreif allt upp, og lét mála það í original lit. Þreif bracketið fyrir rafgeyminn og festi almennilega í.
Hér er mynd af þessum töppum sem ég lét smíða, eru lengst til hægri (ATH þetta er ekki mynd úr bílnum mínum!):
