JÆJA
Kannski kominn tími á smá update á þennan......
Búið er að skipta um húdd (og allt því tengt), bretti, vatnskassabita, járnsvuntu og grill, ásamt því að mála allt klabbið.
Eina sem vantar í hann núna eru framljós (Hella Dark á leiðinni) og vatnskassa (((PM ef þið vitið um)))
M-Techið var einnig málað og var ég að enda við að setja kastara í hann, kem með myndir af því síðar,
Svo er ég búinn að rífa teppið úr honum til að taka vatns/flóðatappana (undir fótunum á farþegum aftur í) úr, og er ég að láta loka þeim götum....
Rafgeymirinn er kominn aftur í, OEM bracket undir geymi ásamt bracketi í húddi og OEM kapall.
Er svo nýbúinn að verzla Stage 2 6-arma keramikkúplinguna ásamt UUC-pressunni og legunni úr RV-bílnum (myndir koma seinna)
Svo ákvað ég að hressa aðeins uppá lookið á gamla og gefa honum síðbúna jólagjöf
