Setur 8 víra lan-tengi á endann á hvern kapal nema þann sem þú vilt hafa símann á, setur síu í töfluna, sími/router/inntak. Finnur út hvaða kapall fer í hvaða tengil og merkir þá, tengir öll pörin í tenglinum sem þú vilt nota fyrir net og sjónvarp(muna að tengja í réttri litaröð).
Setur upp switch í töflunni líka ef 3 nettengar er ekki nóg, tv fer í port 4 á router. Svo bara lan-snúra úr hverjum tengli í tölvuna og sjónvarp.
Ef þú skilur þetta allt þá geturu gert þetta sjálfur, annars hringiru í Jón Bjarna sem póstaði fyrr og hann rúllar til þín og gerir þetta á 2-3 tímum
Held ég sé ekki að gleyma neinu, þetta er easy peasy!





