by íbbi_ » Tue 21. Dec 2010 21:57
þegar þú segir allround, ertu þá að meina hvort ég meini þetta sem bíl í daglegri (fullri) notkun. eða sem sparibíl?
ef svo er þá meinti ég hvorugt frekar en hitt.
og með einum besta akstursbíl seinni ára, þá meina ég akkurat það í raunini. E39 eru einhverjir mest solid bílar sem ég hef keyrt, þótt þeir séu jú margir að verða gamlir og mikið notaðir í dag. og M5-inn svo rjóminn af E39 seríuni. það sem mér líkar t.d við hann eru þægindin, þéttleiki og layout innrétingarinnar. frábær akstursstaða, aksturseiginleikarnir finnst mér með því betra sem hefur komið í svona bíl, ég veit ekki um marga bíla í þessum stærðar og þyngdarflokki sem virka jafn fáránlega vel "ballanceraðir" í akstri og jafn neutral hegðun þegar þeir missa gripið. við þetta blandast samt hellingur af "ride qualaty", svo kemur vélin...
í dag er E39 m5 náttúrulega engin eldflaug, lágar 13 kvartmíluna og allt það. en þetta er samt hellingur af nánast silent og aðgengilegu afli, sem samsvarar svo aksturseiginleikum bílsins afar vel, ég man alveg þá tíð að e39 m5 var ekki á hverju strái hérna og ég fékk smá test drive sem farþegi. og menn mega ekki gleyma viðsnúningnum sem hefur orðið að undanförnu.
á þessum tíma þá bókstaflega átti maður ekki orð.. ég man bara man hvað mér þótti "fyndið" að E34 m5 virkaði hálf afllaus í samanburði. en hann var minn helsti samanburður á þessum tíma.
E39 m5 líka bókstaflega niðurlægði flesta bíla sem hann var settur til höfuðs þegar hann kom, E55 sömu árgerðar er afar mikill bíll. og vinnur vel og virkar á mann sem gífurlega þéttur og mikill bíll.. en það er fyrst þegar maður hoppar beint úr öðrum yfir í hinn að maður sér hversu mikla yfirburði M5-inn hefur sem "græja"
M.benz E320 Family Wagon
Chevrolet Silverado vinnujálkur
Chevrolet Silverado skúrajálkur
Cadillac eldorado 1973, ísbíll