sko.. reyndar þó þú takir dæluna í sundur og leitir að eitthverju sem á að vera ónýtt þá er þetta svo fíngerður búnaður að þú sæir líklegast aldrei mun á nýrri og gamalli dælu nema sú gamla sé bara handónýt.. en ef þú ert viss um að ekkert brot úr þessu sem skemmdist hafi komist inní dæluna og rispað hana að innan(þannig að hún geti misst þrýsing á litlum snúning) þá sé ég ekkert að því að skipta bara um síuhlutann á henni..
EN vertu viss um það að þegar þú ert búinn að setja dæluna í vélina og vélina í bílinn þá myndi ég mæla með því að taka háspennukeflið úr sambandi og starta vélinni og sjá hvort að olíuljósið fari og ef það fer ekki á "eðlilegum" tíma s.s eitthvað um 3sek held ég þá skaltu prófa þettaeinu sinni enn og ef það fer ekki þá skaltu gleyma þessari dælu og ekki reyna setja bílinn í gang því
þá ertu bara dæmdur til að skemma hringi og stangar/höfuðlegur. Og treystu mér það kostar "aðeins" meira að laga það en þetta..
bottom line þetta gæti gengið hjá þér og sparað þér eitthverja þúsara en þetta gæti líka stútað vélinni..your car your choice
