skotveiði seasonið

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: skotveiði seasonið

Postby Eggert » Mon 22. Nov 2010 23:21

Skaut tvær um helgina eftir hellings labb í nágrenni við Heklu.

Ætla að fara aftur næstu helgi, bara spurning hvert?

20"Tommi; var ekki fínt að labba Svínadalinn og Auðkúluheiðina? Sástu mikið af fugli?
E53 X5 4.4i
User avatar
Eggert
Formúlubílstjóri
 
Posts: 3878
Joined: Fri 12. Mar 2004 22:17
Location: Mosó city

Re: skotveiði seasonið

Postby JonHrafn » Mon 22. Nov 2010 23:25

Alpina wrote:Rjúpa............ :drool: :drool:

Image

besta kjöt EVER


Rjúpa og Hreindýr, besta kjötið, enda éta þessi dýr svipaðan gróður.
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Re: skotveiði seasonið

Postby JonHrafn » Mon 22. Nov 2010 23:28

Skelltum okkur bara á önd um helgina. Engin svaka afli en jólasteikin komin, 3 grænhöfðar og 2 rauðhöfðar.

http://www.facebook.com/photo.php?pid=1455632&l=13ced81390&id=1628287440

http://www.facebook.com/photo.php?pid=1455633&l=18f8f48a95&id=1628287440
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

Re: skotveiði seasonið

Postby Jónas » Thu 09. Feb 2012 18:51

Jææææja - kominn tími á að vekja þennan þráð.

Er enginn staður á Suðurnesjunum, eins og þau eru nú stór, þar sem hægt er að dunda sér með haglabyssu eða riffil? Þetta eru allt helvítis óbyggðir
Jónas
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1420
Joined: Sun 02. Feb 2003 14:43
Location: Omnom nom nom

Re: skotveiði seasonið

Postby ingo_GT » Thu 09. Feb 2012 18:58

Jónas wrote:Jææææja - kominn tími á að vekja þennan þráð.

Er enginn staður á Suðurnesjunum, eins og þau eru nú stór, þar sem hægt er að dunda sér með haglabyssu eða riffil? Þetta eru allt helvítis óbyggðir


patterson gamli hér flugvöllurinn
Bmw e36 323 Touring M-tech

Seldir
3 e39 523ia-540ia
8 e36 316-318-318is-320-325
2 e30 316-325
ingo_GT
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2371
Joined: Wed 23. Jul 2008 02:26
Location: Í skúrnum eða á hlið

Re: skotveiði seasonið

Postby sosupabbi » Thu 09. Feb 2012 21:26

Jónas wrote:Jææææja - kominn tími á að vekja þennan þráð.

Er enginn staður á Suðurnesjunum, eins og þau eru nú stór, þar sem hægt er að dunda sér með haglabyssu eða riffil? Þetta eru allt helvítis óbyggðir

ég er nokkuð viss um að allar skotveiðar séu bannaðar á suðurnesjonum.
E39 540i Touring
sosupabbi
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1835
Joined: Wed 24. Oct 2007 18:27

Re: skotveiði seasonið

Postby Danni » Thu 09. Feb 2012 22:52

Það er skotsvæði á veginum áleiðis frá Ásbrú og up í Hafnir. Eða var þar að minnsta kosti. Komst að því fyrir nokkrum árum þegar ég var á rúntinum og sá malarveg og fór að spá í hvað var þar.
Danni

'01 E46 330iA
'99 E46 320i
'98 Honda Civic 1.5i
'17 VW Polo 1.2 TSi
User avatar
Danni
Formúlubílstjóri
 
Posts: 5326
Joined: Wed 12. Nov 2003 11:52
Location: Keflavík

Re: skotveiði seasonið

Postby fart » Fri 10. Feb 2012 11:51

Sævarhöfðinn og bryggjuhverfið virðast henta vel í svona æfingar :thup:
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: skotveiði seasonið

Postby IngóJP » Fri 10. Feb 2012 12:52

Skotfélag Keflavíkur er þar sem Danni talar um. Fínt riffilsvæði og fyrir haglarann getur tekið með þinn eigin kastara :)

Þarft auðvitað að vera member eða koma með member
Suzuki Sidekick 33" 1977
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Re: skotveiði seasonið

Postby IngóJP » Tue 28. Feb 2012 06:14

Voðalega er þetta virkur þráður :thup:

Skaut ekki mikið í vetur, Var aðallega að leika mér með 22lr,

Er einmitt þessa dagana að skoða aðra riffla til að versla. Hafa menn einhverjar uppástungur?

Þar sem þetta er algjört hobby hjá mér þá ætla ég bara að eyða svona 150,000 í riffil helst finna einhvern góðan pakka díl

Svo ef ykkur dettur eitthvað í hug þá endilega deila því
Suzuki Sidekick 33" 1977
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Re: skotveiði seasonið

Postby Kull » Tue 28. Feb 2012 10:30

Þú ættir að skoða hvað er til sölu notað á http://www.hlad.is vefnum og www.bland.is.

T.d. þessi gæti verið fínn. http://hlad.is/forums/comments.php?foru ... did=191472

Eða þessi. https://bland.is/messageboard/messagebo ... tiseType=0
C32 AMG Carlsson
Toyota Land Cruiser 80
Subaru Impreza GX - beater!
User avatar
Kull
Formúlubílstjóri
 
Posts: 1505
Joined: Fri 30. Aug 2002 22:04
Location: Seltjarnarnes

Re: skotveiði seasonið

Postby IngóJP » Tue 28. Feb 2012 12:02

Veit ekki hvað er með mig en ég kaupi mínar byssur nýjar. Veit að það er oft hægt að gera góð kaup á lítið notuðum byssum.

Er aldrei að fara henda 300 kalli í riffil þar sem ég nota þetta voðalega lítið. Keypti t.d 22lr ódýrt kína rusl sem hefur bara reynst mér vel.

Gæti meira segja farið þannig að ég skjóti riffilinn inn og noti hann svo ekkert. Langar bara í stærri riffil ef mér skyldi detta í hug að veiða eitthvað með honum þá á ég hann inní skáp :lol:
Suzuki Sidekick 33" 1977
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Re: skotveiði seasonið

Postby xdriver » Tue 28. Feb 2012 13:50

Ég keypti mér einn svona nýjan Howa Hogue riffilpakka í fyrra þegar ég vann í hreindýralottóinu í fyrsta sinn. Var að leita að ódýrum búnaði og fannst þessi vera besti kosturinn eftir að hafa skoðað hvað var í boði. Valdi hann í 6.5x55 og hef ekki orðið fyrir vonbrigðum. Hann er nákvæmur og sinnti sínu hlutverki fullkomlega.
E46 325i 2003
User avatar
xdriver
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 32
Joined: Wed 09. Nov 2005 13:57
Location: Reykjavík

Re: skotveiði seasonið

Postby IngóJP » Tue 28. Feb 2012 21:31

Akkurat eitthvað svona sem ég er að skoða :thup:

Hef skotið úr svona 243. og þetta var alveg að virka eins og þetta sem kostar hundrað kallana
Suzuki Sidekick 33" 1977
User avatar
IngóJP
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2847
Joined: Wed 22. Mar 2006 02:34

Re: skotveiði seasonið

Postby JonHrafn » Sat 03. Mar 2012 15:55

Að fara að riffla á patteson er eitt af því heimskulegasta sem ég hef heyrt lengi ........

Eina vitið er að fara á skotsvæðið , þarft ekki að vera meðlimur, það er hægt að skjóta leirdúfur sem utanfélagsmaður og eins að kaupa aðgang að riffilhúsinu .

www.keflavik.is/skot auðvitað er eina vitið að ganga í félagið og fá sér lykil að riffilhúsinu og geta mætt þegar þér hentar.
JonHrafn
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1210
Joined: Mon 17. Feb 2003 11:51
Location: Keflavík south

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 44 guests