Vá ég er búinn að sitja hérna síðustu 3 tíma að lesa þennan þráð og þökk sé þessum þræði þá á ég örugglega eftir að sofa yfir mig á morgun
Mæli samt með því að fólk lesi þennan þráð, ég lærði alveg helling á að lesa hann. Flott líka að sjá þegar hann sagar headdið í marga búta og sýnir myndir.
Þvílík vinna sem maðurinn hefur lagt í þennan bíl og ég get ekki ímyndað mér hversu svekkjandi það er að sitja inní sjúkrabíl og horfa á projectið sitt brenna til kaldra kola - bókstaflega!
Fyrir þá sem nenna ekki að finna út hvað gerðist, þá brotnaði útblástursventill hjá honum sem varð til þess að það varð sprenging inní vélinni sem varð til þess að spíssinn sprakk uppúr festingum og bensín sprautaðist útum allt og þá varð eldur.
Hann náði ekki að slökkva á öllum rofum áður en hann þurfti að drulla sér út, þannig bensíndælan hefur hugsanlega verið í gangi í einhvern tíma eftir að eldurinn kviknaði. Hann man ekki eftir því að hafa slökkt á rofanum.
En kallinn er byrjaður á nýjum 330ci, í þetta sinn verður hann ekki með nitro
