Vantar tips um vetrardekk!

Hér skal spjalla um BMW.

Re: Vantar tips um vetrardekk!

Postby trigger » Sun 21. Nov 2010 13:15

Ég er núna að byrja vetur nr 3 á Michelin Ice-X North (negld) og það vantar ekki einn einasta nagla í þau. Enda kannski aðstæður til naglanotkunar betri hér á norðurlandinu en sv-horninu. Ég get samt ekki annað en mælt með þessum dekkjum (er með þau á 17" felgum undir E38) það er ótrúlegt hvað er hægt að koma bílnum áfram í snjó og viðbjóði og þegar ég henti gömlu tuðrunum sem hann var á (drasl) þá lækkaði eyðslan í langkeyrslu um 10% (sama dekkjastærð svo ekki er það skekkja í tölvunni).

Ég hef notað Nokian dekk og þau eru gæðastöff líka, ekki miklar líkur á að neinn verði svikinn af þeim. Eina sem ég hef rekið mig á er að sum vetrardekk sem er verið að bjóða fyrir stærri felgur eru ætluð til notkunar aðeins sunnar í Evrópu og því harðari (fyrir meiri hraða) og geta því verið dálítið varasöm í miklu frosti og á hraða sem þau ná ekkert að hitna/mýkjast.
Enginn BMW
trigger
Kassabílstjóri
 
Posts: 140
Joined: Sat 24. Feb 2007 20:22
Location: Akureyri

Re: Vantar tips um vetrardekk!

Postby geirisk8 » Sun 21. Nov 2010 13:51

Já afturdekkin á e39 520 bílnum sem ég var á, og pabbi er á núna, eru X-Ice North og virka mjög vel!
1999 e39 540 4,4l V8
Image
geirisk8
Kassabílstjóri
 
Posts: 242
Joined: Thu 18. Sep 2008 12:23

Previous

Return to Almennar umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 18 guests