bimmer wrote:Jæja enduðum á Caruso og allir sáttir. Fínn matur og þjónusta, ekkert
mál að vera með krílið með.
Það er semsagt hinn víðfrægi Frank hótelstjóri á Ringhaus sem er á klakanum
núna ásamt sinni frú.
Vel valið. Caruso er mjög fínn staður.
SteiniDJ wrote:Hmm, þannig ef þú ert frægur þá máttu ekki opna veitingastað? Well, ég pirra mig á ýmsu en læt svona lítið á mig hafa.
Ég er alls ekki að segja það. Það sem mér finnst rangt er þetta óeðlilega forskot sem þessi fabrikkan hefur fengið á öllum sviðum. Það er eins og módelið hafi gengið út á að ryðjast inn á þennan markað með lúðrablæstri og skrúðgöngum og ganga frá samkeppninni í einum rykk.
Vitabar fyrir mig takk.




