Sælir kútar.
Þar sem ég nenni engan vegin að eyða föstudagskvöldi í það að lesa mig í gegnum bunka af hjálparsíðum þá ætla ég að kasta spurningunni fram hér.
Málið er að ég keypti rafmagnstæki af amazon.co.uk (Veho Muvi spycam) og hljóðupptakan er bara svona thumping niður eins og úr gamalli sci-fi mynd - ergo bilað.
Mér skilst að það sé auðvelt að skila en sendir maður bara draslið til þeirra og vonar það besta? Mér liði betur ef ég væri í kontakt við manneskju ekki tölvu.
Því spyr ég, hafið þið reynslu af því að skila á amazon (seljandi Amazon EU sarl) og hvernig gekk það fyrir sig?

