sumir hafa spáð í þessu swap-i, og eflaust komin einhver vitneskja einhverstaðar,
mér hefur orðið mjög lengi langað að eiga E36 með v8, þá 4.0l eða 4.4l,
hef heyrt að vandamálin séu m.a mótorfestingar, olíupanna, og gírkassi,
6 gíra kassinn þykir of dýr, en menn hafa þá bent á 5gíra kassa úr E34 530 m60, eða jafnvel E39 535, fyrir mér er þetta ekki vandamál þar sem ég vildi hafa hann sjálfskiptan, og með orginal skiptinguni við mótorinn,
olíupannan er ves, man eftir einum sem ætlaði í svona hérna heima, og alpina vildi ekki selja honum pönnu, og hartge bauð ekki upp á hana, lausnin virðist hinsvegar vera sú að setja dry sump kerfi í þá, það kostar minna en aftermarket panna, og virkar vel,
bremsubooster, í flestum bílum sem ég hef séð með m60/62 swap er búið að færa hann framan í húddið eins og í E39/E38 sem komu með þessari vél orginal, er þetta e-h vesen? eða gengur búnaðurinn úr donernum yfir án vandræða?
ég hef heyrt að það sé bara bras að reyna við m62b44tu, þá aðalega vegna drive by vire og vanos, 96-99 m62 sé málið, og m60 mótornum fylgi minnst elektró ves,
hefði gaman að fá líflegar umræður þetta, hef haft þessa hugmynd í núna 5ár+ og er raunverulega farið að langa að prufa,
p.s getið alveg eins slept því að fleima yfir að ég vilji þetta ssk, það eru ástæður fyrir því og algjörlega astæðulaust því að benda mér á það
_________________ M.benz E320 Family Wagon Chevrolet Silverado vinnujálkur Chevrolet Silverado skúrajálkur Cadillac eldorado 1973, ísbíll
|