Bílageymslur eða stæði til leigu? Vitiði um svoleiðis?

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Bílageymslur eða stæði til leigu? Vitiði um svoleiðis?

Postby BMW728i » Mon 25. Oct 2010 11:45

Veit einhver hvort það sé hægt að fá leigt öruggt stæði í nokkra mánuði? Á stað þar sem ekki er keyrt utan í bíla, þeir ekki hurðaðir eða annaðir slíkt :lol:
BMW728i
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 56
Joined: Tue 29. Jul 2008 17:41

Re: Bílageymslur eða stæði til leigu? Vitiði um svoleiðis?

Postby -Hjalti- » Mon 25. Oct 2010 11:52

fullt af bílageymslum í boði. Er skilda að þetta sé á höfuðborgarsvæðinu ?
00' E38 750i
-Hjalti-
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1332
Joined: Wed 09. May 2007 20:41

Re: Bílageymslur eða stæði til leigu? Vitiði um svoleiðis?

Postby BMW728i » Mon 25. Oct 2010 11:53

Það væri betra, en skiptir svo sem ekki höfuðmáli, svo lengi sem það er ekki á Reyðarfirði eða eitthvað þaðan af lengra. Öryggið ofar öllu!
BMW728i
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 56
Joined: Tue 29. Jul 2008 17:41

Re: Bílageymslur eða stæði til leigu? Vitiði um svoleiðis?

Postby -Hjalti- » Mon 25. Oct 2010 11:58

BMW728i wrote:Það væri betra, en skiptir svo sem ekki höfuðmáli, svo lengi sem það er ekki á Reyðarfirði eða eitthvað þaðan af lengra. Öryggið ofar öllu!


Geymslur fyrir bíla og önnur farartæki á höfuðborgarsvæðinu eru einfaldlega helmingi dýrari en fyrir utan borgina , svo þetta er bara spurning hvað þú vilt eyða í þetta
00' E38 750i
-Hjalti-
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1332
Joined: Wed 09. May 2007 20:41

Re: Bílageymslur eða stæði til leigu? Vitiði um svoleiðis?

Postby BMW728i » Mon 25. Oct 2010 13:20

Jú mikið rétt. En svo er dropinn auðvitað ekki beinlínis ódýr í dag, þannig að sparnaðurinn getur verið fljótur að étast upp ef það er mjög langt að fara til að huga að bílnum. Ég býst við að vilja geta sett í gang einu sinni til tvisvar í mánuði og tekið einn hring.

En aðal málið er hvort staðurinn sé öruggur. Ég get ímyndað mér að verð á svona löguðu sé allt frá 3 - 12 þús. pr. mánuð.
BMW728i
Búðarkerrubílstjóri
 
Posts: 56
Joined: Tue 29. Jul 2008 17:41

Re: Bílageymslur eða stæði til leigu? Vitiði um svoleiðis?

Postby Thrullerinn » Mon 25. Oct 2010 14:04

Ég er líka að hugsa um að kippa porkinum af númerum, allar ábendingar vel þegnar, þarf að vera þurrt.
Carrera4 964 '91
User avatar
Thrullerinn
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4108
Joined: Thu 26. Feb 2004 20:24
Location: 101

Re: Bílageymslur eða stæði til leigu? Vitiði um svoleiðis?

Postby bimmer » Mon 25. Oct 2010 14:12

F1 og F2 eru með svona bíssness.
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Bílageymslur eða stæði til leigu? Vitiði um svoleiðis?

Postby Alpina » Mon 25. Oct 2010 17:29

Tekið af L2C

Við erum nokkrir félagar með gott pláss í miðbæ Reykjavíkur og getum leigt út stæði fyrir bíla og hjól í lengri eða skemmri tíma. Mánaðarleiga fyrir bíla 8-10 þúsund og hjól 3-4 þúsund eftir stærð. Upplýsingar í síma 698-4121 eða á biggi@xnet.is
Kveðja
Biggi


Ath! bara geymslustæði ekki viðgerðir

ATH það ku vera öryggiskerfi þarna
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML


(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:"Fear disturbs your concentration."
User avatar
Alpina
Formúlubílstjóri
 
Posts: 33023
Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Location: Ascari // Nürburgring

Re: Bílageymslur eða stæði til leigu? Vitiði um svoleiðis?

Postby Dóri- » Mon 25. Oct 2010 19:56

ég er að geyma bíl í vogunum 24þ minnir mig til maí en þetta er bara geymslustæði, ekki eitthvað til að setja í gang og láta malla 2 í mánuði.
Ég samdi tildæmis við hann að ég fæ að koma þarna og ná í hann og koma með hann aftur 1-2 yfir tímabilið
User avatar
Dóri-
Formúlubílstjóri
 
Posts: 2042
Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35

Re: Bílageymslur eða stæði til leigu? Vitiði um svoleiðis?

Postby -Hjalti- » Mon 25. Oct 2010 20:24

Dóri- wrote:ég er að geyma bíl í vogunum 24þ minnir mig til maí en þetta er bara geymslustæði, ekki eitthvað til að setja í gang og láta malla 2 í mánuði.
Ég samdi tildæmis við hann að ég fæ að koma þarna og ná í hann og koma með hann aftur 1-2 yfir tímabilið


mæli ekki með þeirri geymslu ef mönnum er ekki sama um bílana sína , Var með bíl þar í einn vetur sem fór 100% ryðlaus þar inn , þegar ég sæki hann um vorið eru allir boltahausar ryðgaðir og þykk salt skán yfir lakkinu , ásam músarskít og myglaðri innréttingu.
Of mikil nálægð við sjóin og ekki nein loftræsting.
00' E38 750i
-Hjalti-
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1332
Joined: Wed 09. May 2007 20:41


Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 60 guests