Nú er ég bara að minna á mig og minn eðaljálk E21 323i.
Ég er að skipta um kúplingu núna og bíllinn verður því afhentur væntanlegum kaupanda með nýrri kúplingu, nýju pústkerfi og smotterí í viðbót sem ég er að snurfusa). Auk þess fylgir með grams í poka, strut brace í skottið svo eitthvað sé nefnt.
Ég er að flytja úr landi og þarf að selja annan hvorn bílinn - bimminn er góður og þarf voða lítið að gera fyrir hann en 911 bíllinn þarf að fara í megrun og því er hagstæðara að stússast í því erlendis og taka hann með út.
Ég ætla að láta duga að auglýsa hér í bili (og stjörnunni) en ef ég renn út á tíma þá er það bara í bílablaði Moggans í sumar
Ég á eftir að sjá MJÖG mikið eftir þessum bíl þar sem hann er svo ótrúlega góður - svo gæti nú verið að ég skipti um skoðun ef það verður auðveldara að selja 911 bílinn

. Það er t.d. mun betra að keyra bimmann en 911 bílinn (enda þarf hann í megrun).
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road