Krónan ...

Langar þig til að segja eitthvað, en þú veist ekki hvar það á heima?! Segðu það hér!

Re: Krónan ...

Postby Vlad » Tue 12. Oct 2010 00:06

bimmer wrote:
saemi wrote:Svona til að leggja dropa í hafið hér. Ég hef spáð slatta í ástand hér á Íslandi og í heiminum, bæði fyrir og eftir hrun.

Nokkrir punktar sem ég hef komist að niðurstöðu með sjálfum mér.

Þeir sem stjórna Íslandi í dag eru:

a) Þeir sem eiga kvótann
b) þeir sem stjórna lífeyrissjóðunum
c) stjórnmálamenn


Mikið rétt.

Þarf ekki bara hressilegt CTRL-ALT-DEL á kerfið?


Frekar bara Shift + delete... laus við þetta bull að eilífu. :)
Enginn bíll eins og er.
Vlad
Rallýbílstjóri
 
Posts: 1318
Joined: Tue 22. Apr 2008 16:20
Location: Selfoss

Re: Krónan ...

Postby zneb » Tue 12. Oct 2010 02:17

Mjög sammála sæma, nema, mér finnst komið gott af þessum álverum og virkjunum. Get ekki séð að mikið gott hafi hlotist af þessu risaálveri og virkjun fyrir austan, margt sem bendir til að það hafi bara gert illt verra. Kannski að miklu leyti vegna lélegra eiginhagsmuna-stjórnmálamanna.

Ég neita að trúa því að við getum ekki lifað góðu eðlilegu lífi hér og gott betur en það með þeim auðlindum sem nú þegar hafa verið nýttar. Hvar stoppar þetta annars?

Grunar einmitt að mergur málsins sé það sem sæmi talaði um varðandi eiginhagsmunaseggina... moka þessu í burtu, kvótann til fólksins og burt með þessi rugl laun.
Stebbi
Mongoose SX 6.5

Mercedes Benz 190e sportline ´92 "sec wannabe" seldur
Kawasaki 650sx stand up jet-ski selt
BMW e-34 ///M5 3,6 seldur
zneb
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 289
Joined: Tue 14. Oct 2003 11:43
Location: Austurríki

Re: Krónan ...

Postby Svezel » Tue 12. Oct 2010 08:27

Það þarf ansi margt að breytast til að þessi fyrningarleið geti gengið upp miðað við skuldsetninguna í sjávarútveginum, eins og staðan er í dag fer nánast allur hagnaður í vaxtagreiðslur af lánum sem runnu upprunalega til kvótakaupa og endurbóta á flotanum. Held að menn myndi ekki tala um arðrán ef þeir sæu hvernig rekstur á þessum fyrirtækjum gengur fyrir sig og milljarðana á milljarða ofan sem þessi fyrirtæki skila í ríkiskassann, við núverandi kerfi er þó nýting auðlinda sem hæst og reksturinn laus við ríkisstyrki. Það er ástæða fyrir því að stjórnmálaflokkar gefa þessar fyrninarleiðir upp á bátinn þegar þeim gefst tækifæri til að skoða ofan í kjölinn á rekstrinum.

Málið er að þau fyrirtæki og þeir rekstraraðilar sem eru í þessu í dag eru þeir sem hafa þraukað öll þessi ár og kostað gríðarlega fé til að halda í þann veiðirétt sem þeir hafa í dag og n.b. borga ríkinu milljarða á hverju ári fyrir þann veiðirétt.. Þeir sem hafa selt réttinn og virkilega makað krókinn er löngu farnir í annan rekstur (banka, fjárfestingar, o.fl) sbr. Samherja bræður, Bakkavör, Magnús Kristinsson o.s.frv.

Það hlýtur hins vegar að vera hægt að gera meira úr rekstrinum með því t.d. að draga úr útflutningi á óunnum fiskafurðum, eða þessari ofveiði á uppsjávarfiski sem er að drepa botnfiskinn sem er jú sá fiskur sem skilar mestum peningum. Það mætti t.d. gera einhverja kröfu um eitthvað lágmarks magn af fiski sem yrði að fara á fiskmarkað og hámarks útflutning á óunnum fiskafurðum sem myndi ýta undir fiskvinnslu og skapa fleiri störf með hærri útflutningstekjum. Hagsældin liggur ekki í eignaupptöku og frekar skattheimtu eins og Steingrímur J virðist halda
E36 M3 US | Jeep Grand Cherokee Limited V8
User avatar
Svezel
Formúlubílstjóri
 
Posts: 6870
Joined: Mon 02. Sep 2002 11:04
Location: á hjólinu

Re: Krónan ...

Postby urban » Tue 12. Oct 2010 08:45

zneb wrote:Grunar einmitt að mergur málsins sé það sem sæmi talaði um varðandi eiginhagsmunaseggina... moka þessu í burtu, kvótann til fólksins og burt með þessi rugl laun.



fólk hefur ekki verið sérstaklega sátt við afskriftir af lánum hjá stórum aðilum hingað til.

ef að þú tekur kvóta af útgerðarmanni þá missir hann tekjumöguleikana
ég hugsa að það séu 95% útgerða sem að eiga einhver kvóta að ráði (meira en bara trillukarlar með <5tonn) sem að hafa keypt hann
hafa tekið til þess lán og eru almennt að borga af þeim lánum (þó svo að það hafi minnkað töluvert núna með gengishruni

hvað er betra við það að taka kvótann af þeim útgerðarmanni sem að hefur skip og báta í útgerð nú þegar,skip og báta sem að nú þegar eru á veiðum ?
helduru að gunna í breiðholtinu sé eitthvað betri að veiða þann kvóta ?

eini munurinn er að gunna í breiðholtinu kemur til með að fá kvóta, kemur ekkert til með að geta notað hann (jú náttúrulega með sölu á honum, en það er það sem að fólk er á móti í kvótakerfinu, kvótakóngum) og útgerðaraðilinn sem að hefur haldið launum í ýmist sjálfum sér (einstaklingur á trillu) eða fjöldafólks hættir að borga af lánunum sínum, þar sem að jú ef að hann hefur ekki innkomu þá borgar hann ekki af lánum.

þar að leiðandi þarf að afskrifa og með afksirftum á kvótalánum þá fara upphæðirnar að hrannast upp
þá verður einfaldlega annað bankahrun hér á landi þar sem að bankarnir hafa engan vegin efni á þeim afskriftum sem að þyrfti að keyra í gegn.

hætta þessu helvítis kjaftæði um fyrningarleið og annað eins

setja 80% veiðiskyldu á þá sem að eiga kvóta og rest er eingöngu skiptanlegt á milli tegunda
þá hættir þessi kvótasala og menn sem að eiga kvótann þeir veiða hann.

þar að leiðandi er hægt að losna við þetta helvítis kjaftæði sem að menn eru ósáttir við í þessu kvótakerfi, sem að er kvótasala og leiga
það er það sem að útbýr ímyndina um "kvótakónginn"
urban
Go-kartbílstjóri
 
Posts: 321
Joined: Sun 29. Mar 2009 03:01

Re: Krónan ...

Postby Zed III » Tue 12. Oct 2010 09:13

urban wrote:
setja 80% veiðiskyldu á þá sem að eiga kvóta og rest er eingöngu skiptanlegt á milli tegunda
þá hættir þessi kvótasala og menn sem að eiga kvótann þeir veiða hann.

þar að leiðandi er hægt að losna við þetta helvítis kjaftæði sem að menn eru ósáttir við í þessu kvótakerfi, sem að er kvótasala og leiga
það er það sem að útbýr ímyndina um "kvótakónginn"


Agreed,

Kvótakerfið er ekki fullkomið en veiðisóknin er með ágætum, betri en víðast hvar í heiminum.

Það á að takmarka framsal sem kemur í veg fyrir að menn fái úthlutað kvóta og selji hann svo frá sér eða leigi árlega.

Vissuelga má segja að það hafi verið klúður að selja ekki kvótan þegar honum var fyrst úthlutað en það er bara búið og gert, verður ekki tekið aftur.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Krónan ...

Postby Aron Fridrik » Tue 12. Oct 2010 09:39

sammála Sæma !

Ég sé bara ekki að nokkuð geti gerst á meðan alþingismenn eru ráðherrar. Að vera kosinn á þing er eitt. Þá ertu kosinn sem fulltrúi fólksins sem kýs þig. En að vera ráðherra á ekkert skylt við það. Þeir eiga bara að vera starfsmenn ríkisins sem væru þá ráðnir af lýðræðislega kjörnum leiðtoga (samanber usa)

t.d. Stendur hvorugur stjórnarflokkur við sín loforð út af því að stjórnin verður að halda ! Þvílík vitleysa !

Svo vill enginn framkvæma shit nema hann eigi hugmyndina sjálfur. Td. neitar Steingrímur að skattleggja lífeyrisgreiðslur (inn í sjóðina) til að reyna að ná inn pening þar án þess að fólk finni fyrir því, bara út af því að það var ekki hans hugmynd heldur stjórnarandstöðu. Lilja Mósesdóttir (sem er hagfræðingur) er meira að segja sammála að þetta er frábær hugmynd. En þetta stoppar á stolti ! Stolt sem við töpum öll á !
BMW E34 ///M5
User avatar
Aron Fridrik
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4778
Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39

Re: Krónan ...

Postby saemi » Tue 12. Oct 2010 10:37

Þetta með skuldsetningu sjávarútvegsins er að sjálfsögðu vandamál. Það hefði átt á sínum tíma að banna veðsetningu kvóta, það er búið að taka óhemjumikið af fjármunum út á þann hátt. Ekki fór allur sá peningur í uppbyggingu fiskveiðiflotans eða aðbúnaðs á landi. O nei.

En úr því sem komið er, þá á ríkið að segja: Ókei, við yfirtökum kvótann þinn, en líka lánin. Þú borgar okkur vextina í staðinn fyrir að bankinn fái að blóðmjólka fyrirtækið þitt. Fyrirtækið má ráða hvort það vill núlla allt og engan kvóta, eða nota fyrningarfyrirkomulagið á þetta. Svo verður eitthvað fyrningarfyrirkomulag á þessum vaxtagreiðslum í hlutfalli við kvótann.

Það er einmitt málið líka að það þarf að fullvinna fiskinn hér á Íslandi. Fiskvinnslan er með 10.000 manns á launum í Bretlandi við að steikja fisk! Væri ekki málið að gera þetta hér á landi (reyndar myndi enginn íslendingur vinna þetta, en þá væri ekki svona mikið af erlendu fólki hér á landi atvinnulaust :) ). Það er ferlega öfugsnúið að skattlagningin skuli stuðla að þvía að fiskurinn fari óunninn úr landi.
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,
User avatar
saemi
Meðlimur
Meðlimur
 
Posts: 10602
Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Location: Reykjavik

Re: Krónan ...

Postby fart » Tue 12. Oct 2010 10:48

Krafturinn að stofna stjórnmálaflokk? Það væri allavega skemmtileg ástæða til að flytja heim :o
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Krónan ...

Postby Zed III » Tue 12. Oct 2010 10:54

fart wrote:Krafturinn að stofna stjórnmálaflokk? Það væri allavega skemmtileg ástæða til að flytja heim :o


Það væri nú örugglega betri en það sem er í boði í dag.

Ég væri geim.
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Krónan ...

Postby bimmer » Tue 12. Oct 2010 11:10

Atli Steinn alltaf sami snillingurinn:

Image

"Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara

Í dag hef ég lesið, séð og heyrt í íslenskum fjölmiðlum fréttir af úthringingum embættis þíns til Íslendinga sem samkvæmt áætlun sýslumanna eiga yfir höfði sér að missa fasteignir sínar á lokauppboði núna í október. Við fyrstu sýn kann það að virðast sláandi hve fáa næst í en strax á eftir hnýtur maður um það í fréttaflutningnum að 43 prósent aðspurðra hafi ekki nýtt sér heimild til að fresta nauðungarsölu, 18 prósent hafi ekki getað svarað því hvort fresturinn hafi verið nýttur og 48 prósent hafi ekki nýtt sér úrræði vegna greiðsluerfiðleika. Punkturinn yfir i-ið er sá að tíundi hluti aðspurðra veit ekki hver er gerðarbeiðandi við yfirvofandi nauðungarsölu.

Við nánari skoðun kemur engin þessara talna sérstaklega á óvart. Mörg þúsund Íslendingar, sem gerðir hafa verið að annars flokks borgurum og hálfgerðum glæpamönnum í sínu eigin heimalandi, eru flúnir af landi brott og hafa kosið að leita hamingjunnar hér í Noregi og víðar. Þetta er venjulegt fólk eins og sá sem þessar línur ritar. Ekki undrar mig að þessi hópur svari ekki símanum þegar stofnananúmer með forskeytið +354 blasir við á skjánum.

Varðandi það hlutfall fólks sem ekki hefur kosið að nýta sér frestun nauðungarsölu, úrræði vegna greiðsluerfiðleika eða veit yfir höfuð ekki hvaða stofnun er að bjóða fasteign þess upp má einnig auðveldlega finna gjaldgenga skýringu. Þessi hópur hefur einfaldlega gefist upp á bið eftir nothæfum úrræðum og sætt sig við að spilltum bönkum hefur verið gefið veiðileyfi á hann.

Hvað hina snertir, þá sem þegar eru farnir, snýst málið ekki lengur um raunverulegt val. Án þess að ég ætli mér að tala hér fyrir hönd nokkurs skilgreinds hóps veit ég að ég tala fyrir hönd - og báðar hendur - margra í sístækkandi hópi sem ég hef rætt við á götum Stavanger í sumar og mætti vafalaust heimfæra á íslenska nýbúa fleiri skandinavískra borga. Þetta er fólkið sem ákvað fyrir löngu að flýja Ísland og ætlar ekki að leggja það á sig núna að flytja til baka, loksins þegar farið er að ræða um einhver möguleg úrræði. Núna er þetta orðið of seint, Ásta Sigrún, og þau boð mættu einnig ná eyrum hæstvirtra ráðherra forsætis og fjármála. Allt of seint.

Ég lagði það á mig síðasta vetur, ásamt konu minni og samhliða MA-ritgerð, að læra norsku, sækja um tæplega 200 störf í Noregi, moka allri minni búslóð inn í 40 feta gám, ræða við tugi hugsanlegra leigusala í Stavanger, fljúga þangað í samgöngutæki sem er ekki hannað fyrir 194 sentimetra hátt fólk, stíga mín fyrstu skref á norskum vinnumarkaði innan um fólk sem talar óskiljanlegustu mállýsku Noregs og töluvert margt fleira. Núna ætla ég ekki að endurtaka þetta ferli í hina áttina. Ég hefði hins vegar hugsanlega hætt við flutninginn hefði einhver til þess bær aðili sýnt einhvern lit í fyrrasumar í síðasta lagi.

Núna er ég löngu búinn að afskrifa í huga mér hús okkar og íbúð á Íslandi og hyggst ekki notfæra mér úrræði sem koma ári of seint. Sú ákvörðun var reyndar tekin að mestu leyti þegar ég bað Frjálsa fjárfestingarbankann í ársbyrjun 2009 um frystingu á myntkörfuláni sem hafði hækkað úr 17 milljónum í tæpar 40 á um það bil ári, það eru um það bil 55.555 krónur á sólarhring. Svarið var: 'Þú getur alveg sótt um frystingu en við munum segja nei.' Þessum lánum héldu bankarnir látlaust að íslenskum almenningi sem öruggum valkosti við verðtryggð lán.

Þarna brast mín þolinmæði, Ásta, og ég veit að allt of margir hafa svipaða sögu að segja. Ég virði það góða starf sem þitt embætti virðist ætla að hleypa af stokkunum og ég ætla ekki að láta þess ógetið hvílíkt gleðiefni það er að 82 prósent aðspurðra hafi þegið íhlutun embættisins í kjölfar símtals. En í tilfelli mjög margra Íslendinga er barnið löngu dottið ofan í hinn fræga brunn. Vonandi ná þau skilaboð einnig eyrum hinna allra náðugustu arfaherra, Árna Páls Árnasonar, Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms Jóhanns Sigfússonar.

Með vinsemd og virðingu,

Atli Steinn Guðmundsson,
heimatilbúinn vanskila- og glæpamaður úr smiðju íslenskra banka og stjórnvalda"
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...
User avatar
bimmer
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15952
Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Location: Reykjavík

Re: Krónan ...

Postby Zed III » Tue 12. Oct 2010 13:08

Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image
User avatar
Zed III
Formúlubílstjóri
 
Posts: 4849
Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Location: Hfj City

Re: Krónan ...

Postby batti » Tue 12. Oct 2010 15:53

fart wrote:
bimmer wrote:
fart wrote:Það er alltaf þannig að þeir sem eru skynsamari/heppnari þurfa að borga fyrir þá sem eru óskynsamari/óheppnari. Það kallast samfélagshjálp.


Hér varð hrun sem varð til verðbólguskots.

Það er ekkert náttúrulögmál eða réttlæti að það lendi bara á öðrum aðila
lánasamninganna. Það er alveg réttlæti í því að lánveitendur gefi eftir
hluta af "gróðanum" til baka. Já það kostar þá krónur klárlega. Þeir
eiga ekki skýlausan rétt til að fá eignayfirfærslu til sín frá þeim sem
ekki eru í kröggum.

Þetta er ekki það að þeir skynsamari/heppnari þurfi að borga fyrir hina.

Almennar leiðréttingar væru mjög fljótvirk leið sem myndi strax hafa
áhrif og myndi leiðrétta þá eignaupptöku sem hefur orðið í hruninu
að stórum hluta.


Hvað með þá sem keyptu fyrir CASH á toppi bólunnar? Eiga þeir að fá eitthvað til baka?


Þú bara bullar útí eitt
batti
Kassabílstjóri
 
Posts: 225
Joined: Sat 05. May 2007 16:27

Re: Krónan ...

Postby fart » Tue 12. Oct 2010 17:35

batti wrote:
fart wrote:
bimmer wrote:
fart wrote:Það er alltaf þannig að þeir sem eru skynsamari/heppnari þurfa að borga fyrir þá sem eru óskynsamari/óheppnari. Það kallast samfélagshjálp.


Hér varð hrun sem varð til verðbólguskots.

Það er ekkert náttúrulögmál eða réttlæti að það lendi bara á öðrum aðila
lánasamninganna. Það er alveg réttlæti í því að lánveitendur gefi eftir
hluta af "gróðanum" til baka. Já það kostar þá krónur klárlega. Þeir
eiga ekki skýlausan rétt til að fá eignayfirfærslu til sín frá þeim sem
ekki eru í kröggum.

Þetta er ekki það að þeir skynsamari/heppnari þurfi að borga fyrir hina.

Almennar leiðréttingar væru mjög fljótvirk leið sem myndi strax hafa
áhrif og myndi leiðrétta þá eignaupptöku sem hefur orðið í hruninu
að stórum hluta.


Hvað með þá sem keyptu fyrir CASH á toppi bólunnar? Eiga þeir að fá eitthvað til baka?


Þú bara bullar útí eitt

:lol:
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

Re: Krónan ...

Postby batti » Tue 12. Oct 2010 23:21

fart wrote:
batti wrote:
fart wrote:
bimmer wrote:
fart wrote:Það er alltaf þannig að þeir sem eru skynsamari/heppnari þurfa að borga fyrir þá sem eru óskynsamari/óheppnari. Það kallast samfélagshjálp.


Hér varð hrun sem varð til verðbólguskots.

Það er ekkert náttúrulögmál eða réttlæti að það lendi bara á öðrum aðila
lánasamninganna. Það er alveg réttlæti í því að lánveitendur gefi eftir
hluta af "gróðanum" til baka. Já það kostar þá krónur klárlega. Þeir
eiga ekki skýlausan rétt til að fá eignayfirfærslu til sín frá þeim sem
ekki eru í kröggum.

Þetta er ekki það að þeir skynsamari/heppnari þurfi að borga fyrir hina.

Almennar leiðréttingar væru mjög fljótvirk leið sem myndi strax hafa
áhrif og myndi leiðrétta þá eignaupptöku sem hefur orðið í hruninu
að stórum hluta.


Hvað með þá sem keyptu fyrir CASH á toppi bólunnar? Eiga þeir að fá eitthvað til baka?


Þú bara bullar útí eitt

:lol:


Aron M5 að lýsa sinni skoðun á þér í gegnum accountinn minn :) hann þorir ekki að tjá sig við vöðvaða bankamanninn á sínum account.
batti
Kassabílstjóri
 
Posts: 225
Joined: Sat 05. May 2007 16:27

Re: Krónan ...

Postby fart » Wed 13. Oct 2010 07:18

batti wrote:
fart wrote:
batti wrote:Þú bara bullar útí eitt

:lol:


Aron M5 að lýsa sinni skoðun á þér í gegnum accountinn minn :) hann þorir ekki að tjá sig við vöðvaða bankamanninn á sínum account.

Ég hafði nú ekki miklar áhyggjur af þessu commenti satt best að segja.
Image
E36 M3GTtt
User avatar
fart
Formúlubílstjóri
 
Posts: 15742
Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Location: Luxembourg

PreviousNext

Return to Off-Topic umræður

Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 59 guests