Maddi.. wrote:Haha flottur.. var ekkert mál að komast upp á honum? Langt síðan ég hef farið þarna upp en man ekki betur en að vegurinn hafi verið hundleiðinlegur..
Nei, spólaði lítið, og svo er hann svo hár að holurnar voru ekkert vandamál

srr wrote:Sko, ég vissi að ég gerði gott með að bjarga þessum bíl
Ánægður með þig Steini !
Ég mun nú ekki gera þennann upp, örugglega einhver heillegri til í það.
En maður tímir samt ekki að ganga um hann eins og aðra bíla í sama verðflokki
Planið er að "skúra" sprauta hann í vetur í öðrum lit og kanski einhverjar fínar felgur
Allavega taka hækkunarklossana úr að framan. Veit ekki með meiri lækkun en það.
Þarf að kaupa nýjan rafgeymi
Svo er hann að hita sig þegar maður er stopp, hvort það sé bara vatnslás eða skortur á vatni eða eitthvað annað, verð allavega að finna útúr því...
Hann gengur asnalega í lausagangi, hef ekki hugmynd hvað það er nákvæmlega
Háuljósin virka ekki, ég nenni ekki að pæla í því svo ég ætla bara að kaupa mér Xenon