bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Thu 19. Jun 2025 06:19

All times are UTC

Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 198, 199, 200, 201, 202, 203, 204 ... 246  Next
Author Message
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 14:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 02. May 2005 21:23
Posts: 3733
Location: 108
Sveinn...

Þú kemur slatta inn á leiðir til að hafa hvetjandi áhrif á fólk, til þess að fólk sé til í að borga í "klúbbinn"

Segir svo að það eigi ekki að hjálpa þeim sem ekki þurfa hjálp.

Persónulega þekki ég nokkur mál, þar sem íbúðir voru keyptar á 100% ískr. láni. hópur A-.
Og svo fólk sem átti fyrir; frá 30-50% af íbúðarverðinu og tók þá lán fyrir restinni s.s. 30-50% ískr. lán. hópur B-.

Sökum verðbólgu (réttara sagt, verðtryggingar) hafa þessi lán hækkað um margar milljónir s.l. ár, og verð á húsnæði lækkað á sama tíma.

T.d. Arion banki, fór útí það að bjóða leiðréttingu lána sem nemur 110% af fasteignaverði.
Þetta þýðir að hópur A- fær afskrifaðar x milljónir, á meðan peningarnir sem hópur B- hafði safnað sér hafa brunnið upp, og báðir aðilar standa í sömu upphæð á lánunum sínum.

Það þýðir ekkert að segja "GET OVER IT!"

Þó það sé slæmt fyrir hagkerfið og landið í heild, að þá skil ég fólk í hópi B- sem hefur greiðslugetuna, en ekki greiðsluviljan mjöög vel!

_________________
Alpina wrote:
er þetta utandeildin eða hvað er að gerast ,,,

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 15:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
IvanAnders wrote:
Sveinn...

Þú kemur slatta inn á leiðir til að hafa hvetjandi áhrif á fólk, til þess að fólk sé til í að borga í "klúbbinn"

Segir svo að það eigi ekki að hjálpa þeim sem ekki þurfa hjálp.

Persónulega þekki ég nokkur mál, þar sem íbúðir voru keyptar á 100% ískr. láni. hópur A-.
Og svo fólk sem átti fyrir; frá 30-50% af íbúðarverðinu og tók þá lán fyrir restinni s.s. 30-50% ískr. lán. hópur B-.

Sökum verðbólgu (réttara sagt, verðtryggingar) hafa þessi lán hækkað um margar milljónir s.l. ár, og verð á húsnæði lækkað á sama tíma.

T.d. Arion banki, fór útí það að bjóða leiðréttingu lána sem nemur 110% af fasteignaverði.
Þetta þýðir að hópur A- fær afskrifaðar x milljónir, á meðan peningarnir sem hópur B- hafði safnað sér hafa brunnið upp, og báðir aðilar standa í sömu upphæð á lánunum sínum.

Það þýðir ekkert að segja "GET OVER IT!"

Þó það sé slæmt fyrir hagkerfið og landið í heild, að þá skil ég fólk í hópi B- sem hefur greiðslugetuna, en ekki greiðsluviljan mjöög vel!

Það virðist ekki skiljast sérstaklega vel það sem ég er að reyna að segja. Afskriftir gufa ekki upp, þær eru borgaðar af einhverjum, líklega samfélaginu á endanum.

Til hvers að hjálpa þeim sem þurfa ekki hjálp? Þetta snýst ekki up eitthvað eitthvað fyrir alla dæmi, jafnræði, sanngirni eða slíkt. Þetta snýst um það að koma Íslandi aftur á fæturna, að fá samfélagið aftur til að virka. Það sem er að standa í vegi fyrir þessu í dag er að Alþingismenn eru ekki tilbúnir í að taka sénsinn á því að vera óvinsælir, þeir eyða meiri tíma í að bjarga eigin starfi en í að bjarga landinu frá glötun. Á sama tíma virðist vera trend hjá fólki að hætta að borga, sama hvað það er, og eyða peningunum í staðinn, og það er virkilega slæmt.

Hvernig heldur þú að þjóðverjum hafi liðið eftir WW1 eða WW2, eða eftir að Vestur þjóðverjar borguðu fyrir austur þjóðverja, og hvernig það er að þurfa núna að borga fyrir klúður nýrra þjóða í EU. Það er alltaf þannig að þeir sem eru skynsamari/heppnari þurfa að borga fyrir þá sem eru óskynsamari/óheppnari. Það kallast samfélagshjálp.

Ef sá sem tók verðtryggt lán er í þeirri stöðu í dag að geta ekki borgað sökum of hárra afborgana eða atvinnumissis þarf að koma til móts við hann... annars ekki. Það þarf á líta á svona afskriftir sem neyðarúrræði, last resort, hálfgerðar örortkubætur.

_________________
Image
E36 M3GTtt

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 15:07 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
fart wrote:
Það er alltaf þannig að þeir sem eru skynsamari/heppnari þurfa að borga fyrir þá sem eru óskynsamari/óheppnari. Það kallast samfélagshjálp.

Hér varð hrun sem varð til verðbólguskots.

Það er ekkert náttúrulögmál eða réttlæti að það lendi bara á öðrum aðila
lánasamninganna. Það er alveg réttlæti í því að lánveitendur gefi eftir
hluta af "gróðanum" til baka. Já það kostar þá krónur klárlega. Þeir
eiga ekki skýlausan rétt til að fá eignayfirfærslu til sín frá þeim sem
ekki eru í kröggum.

Þetta er ekki það að þeir skynsamari/heppnari þurfi að borga fyrir hina.

Almennar leiðréttingar væru mjög fljótvirk leið sem myndi strax hafa
áhrif og myndi leiðrétta þá eignaupptöku sem hefur orðið í hruninu
að stórum hluta.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 15:11 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
bimmer wrote:

Hvað með þá sem keyptu fyrir CASH á toppi bólunnar? Eiga þeir að fá eitthvað til baka?

_________________
Image
E36 M3GTtt

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 15:20 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
fart wrote:
Hvað með þá sem keyptu fyrir CASH á toppi bólunnar? Eiga þeir að fá eitthvað til baka?

Nei.

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 15:34 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Posts: 4849
Location: Hfj City
fart wrote:
BTW.... það er síðan ein leið sem er vel fær.. og það er að afnema rétt til að nýta skattalegt tap fyrirtækja, því að það virðist enginn hafa hugsað út í það að uppsafnað tap fyrirtækja á Íslandi er svo mikið að það er varla fyrirtæki á Íslandi sem á eftir að borga skatt næstu 2-3-4-5 árin.

Þetta myndi kannski vera í lagi fyrir fyrirtæki með > 5 ára rekstrarsögu en væri mjög slæmt fyrir ný fyrirtæki sem skila ekki hagnaði fyrr en eftir 3-4 ára rekstur.

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 17:10 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Mon 21. Jul 2003 20:26
Posts: 15739
Location: Luxembourg
Zed III wrote:
fart wrote:
BTW.... það er síðan ein leið sem er vel fær.. og það er að afnema rétt til að nýta skattalegt tap fyrirtækja, því að það virðist enginn hafa hugsað út í það að uppsafnað tap fyrirtækja á Íslandi er svo mikið að það er varla fyrirtæki á Íslandi sem á eftir að borga skatt næstu 2-3-4-5 árin.

Þetta myndi kannski vera í lagi fyrir fyrirtæki með > 5 ára rekstrarsögu en væri mjög slæmt fyrir ný fyrirtæki sem skila ekki hagnaði fyrr en eftir 3-4 ára rekstur.

Ég er mestmegnis að tala um tap sem er keypt, en í dag eru mörg fyrirtæki til sölu sem eru í dúndrandi mínus, verða aldrei neitt og er hægt að kaupa fyrir það eitt að nýta tapið í öðru fyrirtæki.

bimmer wrote:
fart wrote:
Hvað með þá sem keyptu fyrir CASH á toppi bólunnar? Eiga þeir að fá eitthvað til baka?

Nei.

Væri ekki "sanngjarnt" að þeir fengju líka leiðréttingu? hver er munurinn á þeim, eignin hefur fallið í verði á meðan cashið sem þeir notuðu óx ekki í verðbólgunni þar sem að það var ekki í varðtryggðri eign. Einhver mun segja að þetta sé útursnúningur í mér, en þetta er bara sagt til að benda á þann punkt að það þarf ekki að hjálpa öllum, fullt af liði sem skuldar bara sínar gömlu verðtryggðu sem þarf ekki leiðréttingu.

_________________
Image
E36 M3GTtt

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 19:41 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Posts: 4849
Location: Hfj City
fart wrote:
Zed III wrote:
fart wrote:
BTW.... það er síðan ein leið sem er vel fær.. og það er að afnema rétt til að nýta skattalegt tap fyrirtækja, því að það virðist enginn hafa hugsað út í það að uppsafnað tap fyrirtækja á Íslandi er svo mikið að það er varla fyrirtæki á Íslandi sem á eftir að borga skatt næstu 2-3-4-5 árin.

Þetta myndi kannski vera í lagi fyrir fyrirtæki með > 5 ára rekstrarsögu en væri mjög slæmt fyrir ný fyrirtæki sem skila ekki hagnaði fyrr en eftir 3-4 ára rekstur.

Ég er mestmegnis að tala um tap sem er keypt, en í dag eru mörg fyrirtæki til sölu sem eru í dúndrandi mínus, verða aldrei neitt og er hægt að kaupa fyrir það eitt að nýta tapið í öðru fyrirtæki.

agreed.

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 19:51 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
fart wrote:
Væri ekki "sanngjarnt" að þeir fengju líka leiðréttingu? hver er munurinn á þeim, eignin hefur fallið í verði á meðan cashið sem þeir notuðu óx ekki í verðbólgunni þar sem að það var ekki í varðtryggðri eign.

Mér finnst þetta bara allt annar hlutur - það er engin "verðvernd" í gangi varðandi eignir og
hefur aldrei verið. Svo má færa rök fyrir því að þessi aðili fái sitt hægt og bítandi til baka
þegar fasteignaverð hækkar aftur. Sá sem fær yfir sig verðbólguskot á verðtryggða lánið
sitt losnar ekkert við það hlass.

fart wrote:
Einhver mun segja að þetta sé útursnúningur í mér, en þetta er bara sagt til að benda á þann punkt að það þarf ekki að hjálpa öllum, fullt af liði sem skuldar bara sínar gömlu verðtryggðu sem þarf ekki leiðréttingu.

Nei kannski er allt í lagi að seilast ofaní vasann hjá fólki ef það á nóg :lol:

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 20:31 
Offline
Barnakerrubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 12:54
Posts: 10882
Location: Reykjavík 101
Varðandi það versta sem getur komið fyrir samfélag eins og okkar held ég að nokkrir löngu dauðir kappar hafi útskýrt best...

"The refusal of King George III to allow the colonies to operate an honest money system, which freed the ordinary man from the clutches of the money manipulators was probably the prime cause of the REVOLUTION."

Benjamin Franklin

"I believe that banking institutions are more dangerous than standing armies... if the American people ever allow private banks to control the issue of currency... the banks and corporations that will grow up around them will deprave the people of their prosperity until their children wake up homeless on the continent their fathers conquered."

Thomas Jefferson

"I am the most unhappy man. I have unwittingly ruined my country. A great industrial nation is now controlled by its system of credit.
We are no longer a government by free opinion, no longer a government by conviction and the vote of the majority, but a government by the opinion and duress of a small group of dominant men."

Woodrow Wilson

Allar breytingar þurfa því að miða að því að fólk eignist hluti í stað þess að vinna nánast eingöngu fyrir lánadrottna. Allt annað er bara plástur.

_________________
Ingvar Örn || BMW R100RS 1994 || Renault Megane RS Turbo 2009 || Alfa Romeo Duetto 1967 Fast Road

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 21:33 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sat 01. Nov 2003 13:43
Posts: 2610
Location: London
Færeyjasyndrómið er hafið :roll:
http://www.mbl.is/mm/frettir/forsida/2010/10/11/joly_tilvera_islands_i_hufi/

_________________
Brynjar
Alfa Romeo 159

Gamalt:
Jaguar XJ8
Daimler Double Six
Jaguar XJ12 Sovereign

Vísitölubílar eru SATANS

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 23:43 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 20:44
Posts: 10602
Location: Reykjavik
Svona til að leggja dropa í hafið hér. Ég hef spáð slatta í ástand hér á Íslandi og í heiminum, bæði fyrir og eftir hrun.

Nokkrir punktar sem ég hef komist að niðurstöðu með sjálfum mér.

Þeir sem stjórna Íslandi í dag eru:

a) Þeir sem eiga kvótann
b) þeir sem stjórna lífeyrissjóðunum
c) stjórnmálamenn

Ástæðan fyrir því að það gengur ekkert hjá Íslendingum í að koma sér út úr þessu ástandi sem er hjá okkur er sú að það er enginn þessara ofantalda til í að missa þau tök sem hann hefur í dag. Frekar en að gera það sem er gott fyrir Ísland, þá gera þeir það sem er gott fyrir þá persónulega.

Það sem þarf að gera til að koma landinu í gang upp á nýtt er að fá starfhæfa stjórn. Núverndi stjórn hefur ekki virkan meirihluta og því kemur hún engu í gegn. Það er allt stíflað og í kekkjum og ekkert gengur. Helst þyrfti þessi stjórn að vera hægri stjórn. Það er ekki hægt að fá allt fyrir ekkert. Eins og staðan er með Vinstri Græna, þá eru þeir í endalausum verndarmálum og það má ekki gera eitt né neitt sem mengar eða spillir neinu. Allt á að vera svo fallegt og gott og allir vinir í skóginum. Því miður er það bara svo að þó svo að það trúi því enginn þá prumpa sætar stelpur líka. Það er ekki hægt að hafa álver og enga mengun. Það er ekki hægt að fá gagnaver og smyrja ekki aðeins hjólin með smá skattaafslætti. Það þarf að skrá hernaðartól á Íslandi sem eru notuð til að drepa fólk til að fá herþotur til að vera hér. Svona mætti áfram telja. Það verður að taka af skarið og fá inn í landið fjármagn til að koma þessu af stað.

Það sem ég vildi sjá á Íslandi er:

Þeir sem eiga kvótann hafa arðrænt Íslendinga í áratugi og það þarf að breyta þessu. Vinstri grænir eru þeir einu sem hafa lagt eitthvað upp úr því að ráði að breyta þessu. Eitt kosningaloforð þeirra var að breyta þessu og án efa ein stærsta ástæða þess að þeir fengu kosningu. Fyrningarleið þeirra, sem hljómaði ágætlega er eitthvað sem kvótaeigendur vilja að sjálfsögðu ekki sjá og nú hafa VG beygt sig í duftið og komið með aðra útgáfu af núverandi kerfi sem varaleið. Skyldi vera að þessir blessuðu þingmenn sem lögðu upp óspilltir og ætluðu að breyta þessu séu skyndilega orðnir nýju bestu vinir kvótaeigendanna? Það á að taka kvótann og færa hann til Íslenska ríkisins, síðan á hver sem vill að geta leigt hann af ríkinu á eðlilegum markaði. Peningurinn á ekki að fara í vasa auðmanns, hann á að fara í vasa okkar allra!

Það má ekki með nokkru móti selja náttúruauðlindir landsins. Það á að nota þær til að fá sem mest í kassann fyrir landið í heild. Þessi peningur á að fara í vasa okkar líka. Það á ekki að vera svo að þingmenn skrifi undir samning með afslætti á raforkuverði til að fá álver í sitt kjördæmi (svo þeir fái kosningu), þegar hægt væri að fá 10falt meira í kassann með að leggja raforkustreng til meginlands Evrópu og selja orkuna þangað í staðinn!

Það þarf að breyta hugsunarhætti varðandi fólk sem er í stjórnunarstöðum hjá fyrirtækjum. Mér er lífsins ómögulegt að skilja hvernig maður í stjórnunarstöðu getur með réttu móti unnið sér inn margföld árslaun, jafnvel ævilaun launafólks á örskotsstundu. þá er ég að tala um launagreiðslur stjórnenda, ekki hlutabréfarétt osfrvs. Þetta er kerfi sem stjórnendur hafa byggt upp á svona 20 árum og er algjörlega óréttlátt. Það er sjálfsagt að borga vel fyrir góða menn, en það er engin glóra í því að menn geti ausið yfir sig fjármunum með þessum hætti. Eins og bent hefur verið á, þá kemur þessi peningur að sjálfsögðu einhversstaðar frá. Það kemur niður á hluthöfum og launafólki fyrirtækisins, öllum nema stjórnendunum! Þetta er þróun sem hefur sogið út úr fyrirtækjum óhemjumikið af fjármunum og komið mjög illa niður á launafólki og hluthöfum víðast hvar. Þessu þyrfti að breyta og hætta þessum ofurgreiðslum.

Það verður að fá stöðugleika í efnahagslífið á Íslandi. Það er ekki hægt að það sé þannig að ef þú ert að reka fyrirtæki sé kominn nýr skattur á morgun. Síðan hinn daginn er búið að hækka tryggingagjaldið um 160%, þarnæsta er fjármagnstekjuskattur kominn upp um 100% osfrvs. Það er ekki hægt fyrir almenning hér á landi að hafa ekki tök á því að fá lán á kjörum sem fólk allsstaðar í kring hefur. Því miður er ég hræddur um að eina sem getur bjargað okkur í þessum málum sé innganga í EU. Af þeim sökum er ég hlynntur inngöngu í EU. Að sjálfsögðu væri okkur betur borgið utan EU, ef hér væri fólk við stjórnvölinn sem væri að stýra með hag okkar allra fyrir brjósti. En því miður held ég að það verið alltaf þannig á Íslandi að stjórnmálamenn verði gerspilltir. Við kunnum ekki að stjórna okkur og höfum aldrei. Er þá ekki bara betra að það séu spilltir stjórnmálamenn í Evrópu sem stjórna okkur í stað spilltra í Íslandi. Að hluti náttúruauðlinda okkar fari í vasa auðmanna í Evrópu, í stað þess að þeir fari í vasa auðmanna á Íslandi? Við almenningur getum þá eignast húsin okkar og daglegt líf okkar verði við sömu leikreglur og hjá öðrum. Við verðum ekki ofurseld duttlungum og skyndiákvörðunum.

Ég gæti haldið lengi áfram......

_________________
Sæmi

E24 645csi, E23 745i E28 M5, E34 525ix, 518g, 525tds, M5T, E53 4.6is,

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 23:47 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
saemi wrote:

Þetta er FLUGSTJÓRINN sem talar ............. 8) 8)

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 23:56 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 02. Nov 2003 21:17
Posts: 15941
Location: Reykjavík
saemi wrote:
Svona til að leggja dropa í hafið hér. Ég hef spáð slatta í ástand hér á Íslandi og í heiminum, bæði fyrir og eftir hrun.

Nokkrir punktar sem ég hef komist að niðurstöðu með sjálfum mér.

Þeir sem stjórna Íslandi í dag eru:

a) Þeir sem eiga kvótann
b) þeir sem stjórna lífeyrissjóðunum
c) stjórnmálamenn

Mikið rétt.

Þarf ekki bara hressilegt CTRL-ALT-DEL á kerfið?

_________________
Þórður
'99 M5 SC // '89 M3 S85 // '04 Patrol GR
Image
Alpina wrote:
S85 er vondur mótor þó að hann sé kraftmikill...

Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Krónan ...
PostPosted: Mon 11. Oct 2010 23:57 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 03. Sep 2002 18:17
Posts: 33023
Location: Ascari // Nürburgring
bimmer wrote:
saemi wrote:
Svona til að leggja dropa í hafið hér. Ég hef spáð slatta í ástand hér á Íslandi og í heiminum, bæði fyrir og eftir hrun.

Nokkrir punktar sem ég hef komist að niðurstöðu með sjálfum mér.

Þeir sem stjórna Íslandi í dag eru:

a) Þeir sem eiga kvótann
b) þeir sem stjórna lífeyrissjóðunum
c) stjórnmálamenn

Mikið rétt.

Þarf ekki bara hressilegt CTRL-ALT-DEL á kerfið?

Þetta fannst mér MEGA fyndið....... :lol: :lol: :lol: :lol:

_________________
Sv.H

E30 CABRIO V12 M70B50 ///
ALPINA B10 BITURBO 346 @ 507
E34 550 V12 JML

(OO[][]OO)

http://alpina.123.is/pictures/
Sabine Schmitz wrote:
"Fear disturbs your concentration."

Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 3679 posts ]  Go to page Previous  1 ... 198, 199, 200, 201, 202, 203, 204 ... 246  Next

All times are UTC

Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 23 guests

You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group