Ég lenti nú einu sinni í því á mínum E39 að hægra stefniljósið byrjaði að blikka að sjálfu sér þegar hann var í gangi. En það var bara í einn dag, ég allavega tók rafgeymin úr sambandi í smá tíma og voila, ekkert vesen. Held nú að þitt sé ekki jafn auðvelt en það sakar ekki að reyna

Og þegar ég keypti minn flöktu mælaborðsljósin og ég vissi aldrei afhverju, á þeim tíma var ég með 90 amp. alternator. Svo fór hann og ég keypti 140 amp. Allavega, þegar nýji alternatorinn var kominn í flöktu ljósin ekki lengur...
Efast um að þetta hjálpi þér eitthvað, en vonandi finnuru útúr þessu
